Innlent

Breyttur útivistartími

Unglingar að leik. Myndin er úr safni.
Unglingar að leik. Myndin er úr safni.
Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum í dag, fyrsta maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Tólf ára börn og yngri mega nú vera úti til klukkan tíu um kvöld. Þrettán til sextán ára unglingar mega vera úti til miðnættis.

Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum.

Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum en þeim er meðal annars ætlað að tryggja að börn fái nægan svefn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×