Heiða í Nikita fær aðalverðlaun FKA 28. janúar 2011 00:01
Mikið var um dýrðir í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær þegar Félag kvenna í atvinnurekstri, FKA, afhenti sínar árlegu viðurkenningar. Aðalheiður Birgisdóttir, betur þekkt sem Heiða í Nikita, hlaut FKA-viðurkenninguna 2011. Undir stjórn Heiðu og félaga hefur fatahönnun Nikita náð fótfestu á erlendum markaði og þykir bera af á sínu sviði hvað snertir listræna útfærslu og vönduð vinnubrögð. Margrét Pála Ólafsdóttir, leikskólastjóri og stofnandi Hjallastefnunnar, hlaut hvatningarviðurkenningu FKA. Hún er löngu landsþekkt fyrir baráttu sína fyrir mannréttindum kvenna, geðsjúkra, samkynhneigðra og ekki síst barna. Dóra Guðbjört Jónsdóttir, gullsmiður í Gullkistunni við Frakkastíg, fékk þakkarviðurkenningu FKA. Dóra fagnaði áttatíu ára afmæli sínu í haust en rekur enn bæði verkstæði og verslun í miðborg Reykjavíkur. Loks kom Gæfusporið 2011 í hlut Íslandsbanka, en Gæfusporið er ár hvert veitt íslensku fyrirtæki sem þykir hafa skarað fram úr við að virkja kraft kvenna innan sinna raða. Hlutfall kynjanna í framkvæmdastjórn bankans er nú hnífjafnt. Það var Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, sem afhenti viðurkenningarnar fyrir hönd FKA að viðstöddum fjölda þeirra karla og kvenna sem standa í framlínu íslensks viðskipta- og atvinnulífs. -gb
Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Fleiri fréttir Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar Sjá meira