Áhöld hvort lífeyrissjóðir hafi náð nægri ávöxtun 9. febrúar 2011 12:18
Hrein eign lífeyrissjóðanna jókst um tæplega 6% að raungildi í fyrra. Hins vegar má ætla að ríflega þriðjungur þeirrar aukningar sé tilkominn vegna innflæðis í sjóðina og því áhöld um hvort raunávöxtun eigna hluta þeirra hafi náð 3,5% tryggingafræðilega viðmiðinu sem notað er við mat á framtíðar eignum og skuldbindingum þeirra. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka en samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans var hrein eign íslenska lífeyrissjóðakerfisins ríflega 1.920 milljarðar kr. um síðustu áramót. Hafði eignin aukist í krónum talið um 145 milljarða kr. frá upphafi ársins. Sé miðað við þróun vísitölu neysluverðs varð 5,6% raunaukning á hreinni eign lífeyrissjóðanna á síðasta ári. Þar verður hins vegar að hafa í huga að innflæði í sjóðina vegna iðgjaldagreiðslna er talsvert meira en útflæði vegna greiðslu lífeyris og úttektar séreignarsparnaðar. Sem dæmi má nefna að árið 2009 var nettóinnflæði í sjóðina 31 milljarðar kr. Sé gert ráð fyrir að nettóinflæðið hafi verið á svipuðum slóðum í fyrra má gróflega áætla að raunávöxtun eigna þeirra hafi numið u.þ.b. 4% á síðasta ári. „Þar sem ætla má að árangur sjóðanna hafi verið mismunandi á árinu hlýtur að teljast nokkuð líklegt að einhver hluti þeirra hafi ekki náð 3,5% ávöxtun á eignir sínar og gæti því þurft að skerða lífeyrisréttindi á komandi misserum," segir í Morgunkorninu. Kaup lífeyrissjóðanna á íbúðabréfum í hinum svokölluðu Avens-viðskiptum í fyrra hafa breytt talsvert eignasamsetningu þeirra. Í þeim viðskiptum keyptu sjóðirnir bréf af Seðlabanka Lúxemborgar og greiddu fyrir með gjaldeyri sem þeir seldu í raun á afar hagstæðu verði. Avens-viðskiptin eiga stóran þátt í því að íbúðabréf í eigu lífeyrissjóða jukust um ríflega 145 milljarða kr. á síðasta ári. Alls áttu sjóðirnir íbúðabréf fyrir tæpa 511 milljarða kr. um áramótin, og nam það tæpum 27% af hreinni eign þeirra. Á sama tíma minnkuðu erlendar eignir sjóðanna um 57 milljarða kr. og voru 473 milljarðar kr. í árslok, sem samsvarar tæpum fjórðungi af hreinni eign þeirra. Hér verður raunar að hafa í huga að styrking krónu á tímabilinu var töluverð, en reiknað á föstu gengi voru erlendar eignir sjóðanna nánast óbreyttar frá upphafi árs til loka þess.„Er athyglisvert að eign lífeyrissjóðanna í einum tilteknum innlendum eignaflokki skuli nú vera meiri en samanlagðar erlendar eignir þeirra. Má ætla að þetta muni að öðru óbreyttu leiða til þess að sjóðirnir muni þegar frá líður kjósa að auka hlutdeild annarra innlendra skuldabréfa sem og erlendra eigna í söfnum sínum," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira