Allir hinir föllnu í skoðun að ári liðnu 9. febrúar 2011 08:00 Forstjóri FME segir ekki útilokað að mál tengd öllum föllnu fjármálafyrirtækjum og þeim sem hafa farið í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu lendi á borði sérstaks saksóknara.Fréttablaðið/Stefán
Ekki er útilokað að eftir ár muni mál tengd öllum þeim fjármálafyrirtækjum sem farið hafa í þrot eða í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu verða í skoðun hjá embætti sérstaks saksóknara. Þetta segir Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, FME. Þetta á við um VBS fjárfestingarbanka, Byr sparisjóð, Sparisjóðinn í Keflavík, SPRON, Sparisjóðabanka Íslands, áður Icebank, Askar Capital og fjármögnunarfyrirtækið Avant. FME mun á næstunni senda eitt til þrjú mál til sérstaks saksóknara. Málin eru af svipuðum toga og þau sem FME hefur þegar sent sérstökum saksóknara. Þau varða grun um grófa markaðsmisnotkun, innherjaviðskipti, ranga skýrslugjöf og óheilbrigða vafasama viðskiptahætti. Strax eftir fall stóru viðskiptabankanna þriggja fékk FME óháða sérfræðinga til að gera athugun á starfsemi þeirra og vinna skýrslu um málið. Slíkt hið sama var gert í tilviki þeirra fyrirtækja sem fóru í slitameðferð eða í gegnum endurskipulagningu í kjölfarið. Gunnar segir að á grunni skýrslnanna séu einstök mál rannsökuð og þau send áfram til sérstaks saksóknara ef tilefni þykir til. Hjá FME starfa tvö rannsóknarteymi með þrettán manns og hafa þeir aldrei verið fleiri. Gunnar segir líklegt að þeim verði fjölgað um fjóra á næstunni. FME hefur fram til þessa sent frá sér 54 mál til sérstaks saksóknara sem teymin hafa unnið og átti eftirlitið 60 prósent mála sem lágu hjá embættinu um mitt síðasta ár. Gunnar segir rannsókn FME hvergi nærri lokið. „Það eru mörg mál í vinnslu, að vísu er ekki búið að skoða þau öll. Þetta er langt í frá að verða búið," segir Gunnar. Samkvæmt stefnuskjali FME mun rannsóknum á falli bankanna ljúka á næsta ári. - jab
Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Fleiri fréttir Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Sjá meira