Stöðugleiki hefur skilað markaðsforskoti 9. febrúar 2011 13:30 „
Hvernig er hægt að ætlast til þess að gerðir séu kjarasamningar í sjávarútvegi þegar allar rekstrarforsendur eru óljósar, hvort heldur eru tekjur eða gjöld," sagði Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. í Grindavík, m.a. í erindi sem hann flutti á morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins í dag, en til fundarins var boðað undir yfirskriftinni Atvinnuleiðin. Húsfyllir var í aðalráðstefnusal Grand Hótel. Fjallað er um málið á vegsíðu LÍÚ. Þar segir að í erindi sínu varð Pétri tíðrætt um mikilvægi stöðugleika og sagði hann hafa skilað Íslendingum forskoti í harðri samkeppni fyrir sjávarafurðir á alþjóðlegum mörkuðum. Hann rakti í ræðu sinni að með stöðugu rekstrarumhverfi gætu stjórnendur lagt orku sína, tíma og fjármuni í áframhaldandi uppbyggingu, fjárfestingar og markaðsstarf með langtímasjónarmið að leiðarljósi. Hann harmaði neikvæða umræðu um sjávarútveg og þá sem í honum starfa og beindi orðum sínum m.a. að núverandi stórnvöldum, sem hann sagði fylgja uppskrift að óstöðugleika. Stefna og markmið væri óljós og einkenndist af skammtímaákvörðunum. Umræðan tæki mið af því og væri ómálefnaleg og meiðandi. Viðvarandi stefnuleysi og óvissa gerði það að verkum að orka stjórnenda færi í allt annað en að efla reksturinn.Pétur sagði umræðuna um sjávarútveg í grunninn snúast um það hvort önnur kerfi en núverandi kvótakerfi hefði væru betur til þess fallin að skapa stöðugleika. Hann sagði nær öll stærstu útgerðarfyrirtækin hafa starfað í áratugi, jafnt fyrir daga kvótakerfisins sem eftir. „Við höfum prófað hvoru tveggja. Látum söguna dæma," sagði Pétur í lok erindis síns.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Sjá meira