Viðskipti innlent

Gjaldþrotum fyrirtækja fækkaði milli ára í janúar

Í janúar s.l. voru 95 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 103 fyrirtæki í janúar 2010, sem jafngildir tæplega 8% fækkun milli ára. Eftir atvinnugreinum voru flest gjaldþrot í Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að í janúar voru skráð 140 ný einkahlutafélög (ehf) samanborið við 157 einkahlutafélög í janúar 2010, sem jafngildir tæplega 11% fækkun milli ára. Eftir atvinnugreinum voru flest einkahlutafélög skráð í heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×