Áætlun um gjaldeyrishöft kynnt á næstu dögum 25. febrúar 2011 11:23
Seðlabankinn vinnur nú að áætlun um afnám hafta í samráði við efnahags- og viðskiptaráðuneytið og er ætlunin að kynna hana fyrir ríkisstjórninni fyrir mánaðamót. Verði hún samþykkt af ríkisstjórninni mun hún að líkindum verða birt opinberlega í kjölfarið. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að um sé að ræða endurskoðun á áætluninni frá í ágúst 2009 og er ferlið við gerð áætlunarinnar nú svipað og þá var. Rétt er að undirstrika að í áætluninni sem kemur fram nú verður líkt og í áætluninni frá 2009 engar tímasetningar í haftaafnámi. Nokkuð skiptar skoðanir hafa verið um hvort afnám hafta eigi að gerast hratt eða hægt. Hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn verið meðal þeirra aðila sem talað hefur fyrir hægfara ferli og áherslan verið á stöðugleika gjaldmiðilsins. Aðrir hafa talað um að afnámið þurfi að ganga hratt fyrir sig með þeim rökum m.a. að höftin séu mjög skaðleg og að lítið hald sé í þeim þegar af stað er farið við afnám þeirra en núverandi höft eru afar víðtæk. Þegar opnað er fyrir aukna fjármagnsflutningi opnast einnig fleiri leiðir framhjá höftunum. Lítið er því í því fyrir stöðugleika myntarinnar að draga það ferli þegar það er byrjað á annað borð. Már nefndi hins vegar á fundinum í gær að fyrsta skrefið í afnámi hafta kunni að taka töluvert langan tíma og standa fram eftir yfirstandandi ári. Áherslumunur hefur einnig verið á milli aðila hversu lagt skuli ganga við afnám hafta en nokkuð ljóst virðist vera að það frelsi sem var í fjármagnsflutningum fyrir hrun mun ekki verða aftur hér á landi í bráð a.m.k. Höft að ákveðnu marki verða því líklegast hluti af fyrirkomulagi gjaldeyrismála næstu árin. Má þar t.d. nefna að innlendum bönkum verður eflaust bannað um langa hríð að afla innlána erlendis með þeim hætti sem forverar þeirra gerðu. Fleira verður eflaust þar sem hefta mun fjármagnsflæðið og skerðir stöðu innlendra fjármálastofnanna í samkeppni við erlenda keppinauta.
Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Sjá meira