Gjaldeyrisforðinn aukinn um 72,5 milljarða 4. janúar 2011 06:50
Seðlabankinn hefur átt í viðamiklum kaupum á gjaldeyri undir lok síðasta árs. Samtals munu þessi kaup styrkja gjaldeyrisforða bankans um 72,5 milljarða kr. Fjallað er um málið á vefsíðu bankans. Þar segir að allt frá falli viðskiptabankanna í október 2008 hefur misvægi milli erlendra eigna og skulda í efnahagsreikningum ýmissa innlendra fjármálafyrirtækja verið langt umfram æskileg mörk. Þetta misvægi eykur áhættu í rekstri fjármálafyrirtækja og kallar á eiginfjárbindingu. Líkt og seðlabankastjóri greindi frá í ræðu sinni á ársfundi Seðlabanka Íslands í mars sl. hefur bankinn leitað leiða til að draga úr ofangreindum vanda með það að markmiði að koma fjármálakerfinu í betra jafnvægi á nýjan leik og stuðla þannig að fjármálastöðugleika. Í þessu skyni bauð Seðlabankinn fjármálafyrirtækjum til viðræðna um samninga með það að markmiði að gjaldeyrismisvægi vegna hreinnar eignar í erlendum gjaldmiðlum sem skila tekjum í erlendri mynt verði ekki meira en sem nemur 15% af eigin fé þeirra. Undir lok ársins átti Seðlabankinn gjaldeyrisviðskipti vegna þessa. Annars vegar keypti bankinn gjaldeyri sem nam um 24,6 milljörðum króna (jafnvirði 160 milljóna evra). Hins vegar samdi hann um framvirk viðskipti sem námu um 47,9 milljörðum króna (jafnvirði 312 milljóna evra). Í heild munu þessi viðskipti auka gjaldeyrisforða Seðlabankans á samningstímanum um 72,5 milljarða króna (jafnvirði 472 milljóna evra). Ofangreindar aðgerðir stuðla að auknum stöðugleika fjármálakerfisins, auka gjaldeyrisforða Seðlabankans og þann hluta hans sem ekki er fenginn að láni erlendis frá. Að meðtöldum reglulegum vikulegum kaupum á gjaldeyri sem hófust undir lok ágúst keypti Seðlabanki Íslands gjaldeyri á millibankamarkaði á árinu sem nam um 30 milljörðum króna, en þar telst ekki með sá gjaldeyrir sem fjármálafyrirtæki munu afhenda Seðlabankanum með framvirkum viðskiptum á komandi árum, að því er segir á vefsíðunni.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira