Viðskipti innlent

Horfur TM úr stöðugum í jákvæðar

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM.
Sigurður Viðarsson, forstjóri TM.

Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur breytt mati á horfum Tryggingamiðstöðvarinnar úr stöðugum í jákvæðar. Jafnframt staðfesta S&P's fyrra mat sitt BB, á fjárhagslegum styrkleika TM, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

Þá segir að í rökstuðningi fyrir mati sínu segja S&P's meðal annars að samsett hlutfall TM eftir fyrstu 9 mánuði ársins sé í fyrsta skipti í langan tíma undir 100%. Breyting á horfum endurspegli væntingar S&P's til þess að stefna félagsins muni skila árangri í rekstri til lengri tíma litið.

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, segir tíðindin ánægjuleg, „sérstaklega þegar litið er til þess að aðstæður á markaði hafa sjaldan eða aldrei verið jafn krefjandi og á síðustu misserum. Samkeppni er hörð, aðstæður til fjárfestinga eru erfiðar í ljósi gjaldeyrishafta og gengið hefur hægar en væntingar stóðu til að endurreisa íslenskt atvinnulíf." Sigurður segir að stefna TM frá árinu 2007 hafi verið skýr á þá leið að vátryggingareksturinn beri sig og segir hann að tíminn hafi leitt í ljós ljós að það hafi verið skynsamlegt skref, mat S&P's frá því í desember sl. staðfesti það án nokkurs vafa.

„Stjórn og starfsmenn TM horfa björtum augum fram á veginn enda er fyrirtækið að mörgu leyti í óskastöðu. TM er fjárhagslega sterkt félag sem hefur alla tíð verið þekkt fyrir framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini. Við höfum verið að stíga skref til þess að þróa þjónustuna enn frekar því að víða eru tækifæri til þess að efla vátryggingaráðgjöf einstaklinga, fjölskyldna og fyrirtækja. Við hlökkum því til þess að halda áfram að vaxa og dafna með viðskiptavinum okkar," segir Sigurður ennfremur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×