Breytt kortatímabil hjá Valitor 24. janúar 2011 15:26 Nýja fyrirkomulagið tekur gildi 18. febrúar 2011 og stendur það tímabil því fram til 21. mars.
Með hliðsjón af breyttum aðstæðum í kortaviðskiptum hefur Valitor ákveðið að færa almennt úttektartímabil Visa kreditkorta þannig að það standi frá 22. degi hvers mánaðar til 21. dags næsta mánaðar. Nýja fyrirkomulagið tekur gildi 18. febrúar 2011 og stendur það tímabil því fram til 21. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Valitor. „Febrúar hentar vel fyrir þessa hliðrun á dagsetningum þar sem hann er styttri en aðrir mánuðir. Þar af leiðandi verður úttektartímabilið ekki óeðlilega langt og ætti því ekki að valda korthöfum óþægindum," segir í tilkynningunni.Óbreyttur gjalddagi Gjalddagi kortanna verður óbreyttur: 2. dag næsta mánaðar eftir að úttektartímabili lýkur. Engin breyting verður heldur á boðgreiðslum né öðrum föstum greiðslum korthafa. Um 30% af kortaviðskiptum innlendra söluaðila, sem eru í viðskiptum við Valitor, fara fram á almennum tímabilum en um 70% á svokölluðum breytilegum tímabilum sem verða með samskonar sniði og áður. Með breytilegum tímabilum er átt við þær dagsetningar sem verslanir auglýsa sem ný kortatímabil en langflestar verslanir sem selja almennar neysluvörur nýta sér breytilegu tímabilin. Í tilkynningunni segir að nýja fyrirkomulagið breyti litlu fyrir korthafa. .Áður þurfti að handskrá sölunótur Allt frá árinu 1983 hefur almennt úttektartímabil VISA korthafa staðið frá 18. degi hvers mánaðar til 17. dags næsta mánaðar. Aðalástæða þess að kortatímabilinu lauk þann 17. var sú að handskrá þurfti allar sölunótur. Sú vinna var tímafrek og því nauðsynlegt að hafa nokkra daga til að koma allri skráningu í gegn áður en reikningar voru gefnir út. Tækninni hefur fleygt fram og nú tekur vinnslan mun skemmri tíma en í árdaga kortaviðskipta á Íslandi, auk þess sem miklar breytingar hafa orðið á umhverfi greiðslumiðlunar.
Mest lesið Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar Sjá meira