Innlent

Gullni hringurinn illfær tvo daga vikunnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tvo daga vikunnar, á þriðjudögum og laugardögum, er Mosfellsheiðin og Gjábakkavegur ekkert mokuð. Þetta hefur valdið því að bílar sem hyggjast aka Gullna hringinn, leiðina á milli Þingvalla, Geysis í Haukadal og Gullfoss, komast ekki leiðar sinnar.

Hjá Vegagerðinni fengust þær upplýsingar að þungfært hafi verið á þessum leiðum í gær. Það fékkst jafnframt staðfest að Vegamálastjóra bærust reglulega athugasemdir frá aðilum í ferðaþjónustu vegna þessa, en fólk hefði þó skilning á að fjárframlög til stofnunarinnar hefðu verið skorin niður að undanförnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×