Raungengi krónunnar ekki lægra síðan í maí í fyrra 7. febrúar 2011 11:06
Raungengi krónunnar á mælikvarða neysluverðs lækkaði um 2,8% í janúar eftir að hafa lækkað um 1,0% í desember. Hefur raungengið ekki verið lægra síðan í maí í fyrra. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að raungengi krónunnar sé lágt eða um 19% undir meðaltali síðustu tíu ára svo dæmi sé tekið og 34% undir því sem það fór hæst í aðdraganda hrunsins, þ.e. á árinu 2007. Það var Seðlabankinn sem birti tölur um raungengið á föstudaginn var. Þróun raungengisins endurspeglar þróun nafngengisins ásamt neysluverðsþróun hér á landi og erlendis. Lækkun raungengisins síðustu tvo mánuði er þannig til komin vegna þess að nafngengi krónunnar hefur verið að lækka og neysluverð einnig. Í desember síðastliðnum lækkaði nafngengi krónunnar um 0,8% á milli mánaða og verðlag hækkaði um 0,3%. Í janúar lækkaði nafngengi krónunnar um rúm 2% á milli mánaða og á sama tímabili lækkaði verðlag um 0,9%. Þrátt fyrir að raungengið hafi lækkað síðustu tvo mánuði hefur það hækkað um 17% frá því að var lægst í kjölfar hrunsins í lok árs 2008. Raungengið er samt líkt og áður sagði enn lágt í sögulegu samhengi, sem gæti bent til þess að það muni hækka þegar fram líða stundir. „Þá er raungengið enn að okkar mati nokkuð undir því gengi sem tryggir jafnvægi á utanríkisviðskiptum þjóðarbúsins, sem sýnir sig m.a. í þeim umtalsverða afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd sem var á síðasta ári en við áætlum að hann hafi verið um 170 milljarðar kr. eða 8% af landsframleiðslu," segir í Morgunkorninu. „Hversu mikil raungengið mun hækka, að hve miklu leyti hækkunin mun eiga sér rót í hækkun á nafngengi krónunnar og hversu mikið í innlendu verðlagi og launum og hversu langur tími mun líða þar til þessi hækkun er komin fram hins vegar ómögulegt að segja til um með vissu."
Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Fleiri fréttir Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Sjá meira