Reykjanesbær gangi í 3,3 milljarða ábyrgð fyrir Reykjaneshöfn 11. apríl 2011 07:44
Reykjaneshöfn hefur gert kröfuhöfum sínum tilboð um endurfjármögnun á skuldum sínum. Í tilboðinu felst m.a. að Reykjanesbær gangi í ábyrgð fyrir rúmlega 3,3 milljörðum kr. Af skuldum hafnarinnar. Um yrði að ræða tvo skuldabréfaflokka sem kröfuhafar fengju í hendur. Í tilkynningu segir að á fundi þann 16. mars 2011 var lánveitendum og eigendum fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn kynntar hugmyndir Reykjaneshafnar um mögulegar leiðir til endurfjármögnunar á skuldum stofnunarinnar. Engar ákvarðanir voru teknar á fundinum, en óskað eftir viðbrögðum við þeim hugmyndum sem kynntar voru fyrir 5. apríl Í millitíðinni hefur Reykjaneshöfn að ósk þeirra þriggja lífeyrissjóða sem eru stærstu kröfuhafarnir að undanskildum Reykjanesbæ og Lánasjóði Sveitarfélaga, ráðið verðbréfafyrirtækið Arctica Finance hf. til að vera þessum lífeyrissjóðum til ráðgjafar, sem og öðrum kröfuhöfum sem þess óska. Eftir sem áður mun verðbréfafyrirtækið Centra Fyrirtækjaráðgjöf hf. vera ráðgjafi Reykjaneshafnar og hafa með höndum samskipti við kröfuhafa fyrir hennar hönd. Í ljósi þeirra viðbragða sem Reykjaneshöfn hafa borist frá kröfuhöfum í kjölfar fundarins þann 16. mars s.l. vill stofnunin setja fram tillögu um útfærslu á endurfjármögnun sem felur í sér þá hugsun að „bíða og sjá“, sbr. kynningu frá 16. mars. Tillagan er sú að kröfuhafar endurfjármagni núverandi skuldir hafnarinnar að hluta til með löngu jafngreiðslubréfi sem fái þjónustu strax, en að hluti af skuldunum verði settur á styttra bréf sem fái ekki þjónustu fyrr en eftir tvö ár. Reykjaneshöfn mun hafa burði til að standa við skilmála bréfanna ef þróunin á næstu árum verður á þann veg sem lýst er í sviðsmynd sem nefnd var „Grunnviðmið“ í kynningu 16. mars, þ.e. að kísilver verði að veruleika með þeim áhrifum á atvinnuuppbyggingu á svæðinu sem vænst er að því fylgi. Ákvæði bréfanna tryggi hagsmuni kröfuhafa og aðkomu þeirra að málum ef þróun er neikvæð. Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi fjármálagerningar verði keyptir til baka á bókfærðri stöðu þeirra og greitt fyrir með löngu bréfi á kröfu sem nemur 100 punktum á HFF 44 og styttra bréfi á kröfu sem nemur 380 punktum á HFF 34. Annað bréfið er upp á tæplega 1,8 milljarða kr. og hitt upp á tæplega 1,6 milljarða kr. Hlutföll milli bréfanna tveggja verður með þeim hætti að meðalkrafa nemur 235 punktum. Við verðlagninguna á þessum nýju bréfum var litið til þeirrar verðlagningar sem hefur tíðkast í skuldabréfaútgáfum hafnarinnar, en meðalálag við sölu á öllum verðtryggðum núverandi bréfum og lánum Reykjaneshafnar nemur 171 punktum og hæsta verð sem höfnin hefur greitt fyrir verðtryggt lánsfé fram að þessu nemur 235 punktum umfram áhættulausa vexti. Bréfin verða með fulla ábyrgð sveitarfélagsins. Óskað er eftir afstöðu lánveitenda og eiganda fjármálagerninga við þessari tillögu fyrir klukkan tólf á hádegi mánudaginn 18. apríl 2011. Allir lánveitendur og eigendur fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn, utan Lánasjóðs Sveitarfélaga, verða að samþykkja tillöguna ef hún á að ná fram að ganga.
Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Sjá meira