Ekki von á breytingum hjá Moodys í þessari viku 11. apríl 2011 11:54
Ekki er að vænta breytingar á lánshæfismati ríkissjóðs í þessari viku samkvæmt bandaríska matsfyrirtækinu Moodys. Endurmat lánshæfis veltur á viðbrögðum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Norðurlandanna. Bandaríska matsfyrirtækið Moodys tilkynnti í febrúar að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave myndi hafa áhrif á lánshæfismat Íslands. Í þeirri tilkynningu sagði að ef að samningunum yrði hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslunni myndu þeir neyðast til að endurskoða lánshæfismatið með neikvæðu viðhorfi. Þá var talið að höfnun samninganna gæti haft þau áhrif að 1,1 milljarða dollara lán frá Norðurlöndunum gæti tafist sem og efnahagsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Umfang niðurfærslu matsins myndi síðan velta á heilbrigði hagkerfisins sem og efnahagslegum bata með tilliti til áframhaldandi gjaldeyrishafta og erlends lánastuðnings. Í samtali við fréttastofu segir Kathrin Muehlbronner, yfirgreinandi hjá Moodys í London, að ekki sé von á uppfærðu lánshæfismati strax í þessari viku. Fyrirtækið ætli sér nú að meta stöðuna í kjölfar niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar í samhengi við hvernig Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og norrænar ríkisstjórnir bregðast við. Það sé hins vegar fullljóst að þeir muni endurmeta lánshæfi ríkissjóðs og tilkynna niðurstöðu sína eins fljótt og hægt er. Lítil viðbrögð urðu við opnun skuldabréfamarkaða í morgun en almennt er talið að markaðir hafi verið farnir að undirbúa sig undir höfnun samninganna í kjölfar skoðanakannanna í lok síðustu viku. Þá er talið að markaðsaðilar séu að bíða niðurstöðu matsfyrirtækja.
Mest lesið Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Blöskraði dekkjaverð á Íslandi og sparaði sér á þriðja hundrað þúsund Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Sjá meira