Þrettán flugfélög til Íslands 15. janúar 2011 08:30 Leifsstöð. Enn eru ekki öll kurl komin til grafar varðandi fjölda erlendra flugfélaga sem sækjast eftir að fljúga til og frá Íslandi næsta sumar. Fréttablaðið/Valli
Vaxandi áhugi er nú meðal erlendra flugfélaga á að fljúga til og frá Íslandi. Að minnsta kosti ellefu erlend félög hafa tilkynnt um flug hingað til lands næsta sumar og fleiri gætu bæst við. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia sem rekur flugvelli á Íslandi, segir það skýrast í lok janúar hversu mörg erlend flugfélög sækist eftir og fái aðstöðu á Keflavíkurflugvelli í sumar. Hjördís bendir á að umsvif þessara félaga verði mismikil, sum þeirra ætli eingöngu að fljúga hingað fáeinar ferðir en önnur hyggist halda uppi reglulegu áætlunarflugi. „Við finnum fyrir meiri áhuga en verið hefur. Þróunin í fluginu hefur snúist og er nú upp á við eftir dýfu í kjölfar efnahagshrunsins,“ segir Hjördís. Yfirlit yfir framboð á ferðum til og frá Íslandi má finna á leitarvefnum Dohop. Í tilkynningu frá Dohop segir að óvenjumikið framboð af flugi verði til og frá Íslandi næsta sumar. „Erlend flugfélög bjóða beint flug frá Keflavík til Vínar, Berlínar, Hamborgar, Nuuk, Parísar, New York, Ósló og Gautaborgar,“ segir í upptalningunni frá Dohop. Auk þess bjóða íslensku flugfélögin flug á fjölmarga áfangastaði. Aðspurð segir Hjördís Keflavíkurflugvöll geta annað jafn mikilli umferð og stórir vellir í Evrópu. Flugstöðin anni 3,5 milljónum farþega. Það er langt umfram þær tæplega 2 milljónir farþega sem fóru um Leifsstöð þegar best lét í góðærinu. Meðal þeirra flugfélaga sem fljúga hingað í sumar er bandaríska félagið Delta. Íslensk yfirvöld eru nú með til skoðunar ósk Delta um að hafa vopnaða verði um borð í þeim farþegavélum sem hingað koma. - gar
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Sjá meira