Google stofnar fyrirtæki á Íslandi 15. janúar 2011 00:01 Google er eitt af stærstu fyrirtækjum í heimi. Fyrirtækið hefur nú fengið íslenska kennitölu og heimilisfang að Stórhöfða 21.Fréttablaðið/AP
Netrisinn Google hefur stofnað fyrirtæki á Íslandi. Google er með íslenska kennitölu og lögheimili að Stórhöfða 21. Stofnendur fyrirtækisins samkvæmt Lögbirtingablaðinu eru Graham Law, fjármálastjóri hjá Google, og Ronan Aubyn Harris, framkvæmdastjóri hjá Google. Báðir eru þeir skráðir til heimilis á Írlandi en höfuðstöðvar Google í Evrópu eru einmitt í höfuðborg Írlands, Dublin. Ráðgjafarfyrirtækið Hyrna sem er til heimilis að Stórhöfða 21 aðstoðaði við að stofna fyrirtækið hér á landi. Bernhard Petersen, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið en sagðist hins vegar ekki vita til hvers Google væri að stofna fyrirtækið hér á landi og vildi ekkert tjá sig frekar um málefni þess. Á hinn bóginn sagði hann að þegar erlend fyrirtæki stofnuðu fyrirtæki hér á landi mætti gera ráð fyrir „að þau væru að skoða möguleikann á því að vera með tekjuskapandi verkefni hér á landi“. Fréttablaðið hafði samband við Laurie Mannix hjá fjölmiðladeild Google á Írlandi. Hún hafði fátt um þetta fyrirtæki að segja en bætti því við að Google Europe hefði ekki í hyggju að opna skrifstofu á Íslandi í bráð. - fgg
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira