Utanlandsferðir jukust um rúm 25% í desember 18. janúar 2011 12:22
Í desember síðastliðnum héldu mun fleiri Íslendingar erlendis en á sama tíma árið 2009, eða um 20.300 á móti 16.100. Þetta jafngildir aukningu upp á ríflega fjórðung. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þessi aukning er í takti við þá þróun sem varð á síðasta ári. Þannig varð stöðug fjölgun á brottförum Íslendinga erlendis miðað við sama tíma árið 2009 í hverjum mánuði, þó að aprílmánuði undanskildum þegar eldgosið í Eyjafjallajökli lét mest á sér bera. Á nýliðnu ári voru brottfarir Íslendinga um Leifsstöð þannig um 293.800 talsins, sem er aukning upp á 15,4% frá árinu 2009. Það að landinn hafi verið meira á faraldsfæti á nýliðnu ári á sér eflaust margar skýringar en líklegast má einna helst rekja þá þróun til aukins kaupmáttar hans á erlendri grundu með hækkun á nafngengi krónunnar. Annað sem má nefna hér til sögunnar er að töluvert dýrara var fyrir landann að ferðast innanlands á árinu 2010 en 2009. Þannig var eldsneyti um 20% dýrara og flugfargjöld innanlands hækkuðu um 10% á sama tíma og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um tæp 6%. Nokkuð ljóst er að enn er töluvert í land að Íslendingar ferðist jafn mikið til útlanda og á hinu mikla neysluári 2007 þegar brottfarir þeirra um Leifsstöð voru um 452 þúsund, eða ríflega helmingi fleiri en á nýliðnu ári.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira