Alþingi: Vilja óháðan uppboðsmarkað á eignum banka 18. janúar 2011 11:53 „
Alþingi ályktar að fela efnahags- og viðskiptaráðherra að hafa forgöngu um að stofnaður verði óháður og gagnsær uppboðsmarkaður fyrir eignir banka og fjármálastofnana, fyrir utan íbúðarhúsnæði, sem hafa verið yfirteknar á grundvelli ... laga um fjármálafyrirtæki... Uppsetning og rekstur markaðarins verði í höndum hins opinbera. Markaðnum er ætlað að auka skilvirkni efnahagslífsins og trúverðugleika íslensks fjármálakerfis, efla traust almennings og stuðla að gagnsærra samfélagi." Þetta segir í þingsályktun sem lögð verður fram á Alþingi í dag. Að henni standa þingmenn frá Framsóknarflokknum og Hreyfingunni en flutningsmaður tillögunnar verður Birkir Jón Jónsson. Í greinargerð með tillögunni segir að ljóst sé að mikil tortryggni ríkir í þjóðfélaginu um starfsemi fjármálastofnana og meðferð þeirra eigna sem stofnanirnar hafa tekið yfir. Nauðsynlegt er fyrir uppbyggingu samfélagsins að allt endursöluferli þessara eigna sé gert lýðræðislegt og gagnsætt, þar sem allir eigi jafna möguleika til þátttöku og við tilboðsgerð í þær eignir sem fjármálastofnanir ætla að selja á hverjum tíma. Með það að leiðarljósi ætti að auðvelda öllum fjármálastofnunum að innleiða upplýstara og augljósara ferli við sölu eigna þar sem allur vafi yrði tekinn af um að fullnægjandi vinnubrögð séu viðhöfð. Öllum bönkum og fjármálastofnunum yrði gert að auglýsa yfirteknar eignir sem ætlunin er að selja á þar til gerðum óháðum markaði. Framkvæmd markaðarins yrði á sambærilegu formi og önnur opinber uppboð og færi fram gegnum sérútbúna vefsíðu. Á vefsíðunni yrðu birtar allar nauðsynlegar upplýsingar um eignirnar, þar sem öllum gæfist kostur á að bjóða í hverja eign fyrir sig. Hið opinbera mundi stofna og starfrækja uppboðsmarkaðinn. Stofnun slíks markaðar mundi auka jafnræði í samfélaginu og þar með einnig traust og gagnsæi í þjóðfélaginu, auk þess sem uppboðsmarkaðurinn mundi minnka líkur á að óheilbrigðir viðskiptahættir yrðu viðhafðir. Lagt er til að fyrirkomulag við uppboðin verði eftirfarandi: Auglýsingatími eigna verði að lágmarki tvær vikur. Auglýsingar verði sambærilegar venjubundnum eignaauglýsingum, svo sem fasteignaauglýsingum, og birtar á almennum leitarsíðum. Ef hæstu boðum er hafnað ber fjármálastofnun að gera grein fyrir ákvörðun sinni til opinbers eftirlitsaðila, t.d. Fjármálaeftirlitsins eða Ríkiskaupa. Helstu kostir opinbers uppboðsmarkaðar af þessu tagi eru að draga úr tækifærum til misnotkunar, koma hreyfingu á fjármagn og viðskipti, stuðla að endurreisn trúverðugleika fjármálakerfisins og fjármálafyrirtækja ásamt því að tryggja jafnræði í sölumeðferð eigna.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira