SA og ASÍ semja um viðræðuáætlun 18. janúar 2011 15:13
Samtök atvinnulífsins (SA) og Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hafa undirritað viðræðuáætlun um sameiginleg mál en áætlunin var undirrituð á fundi samninganefnda samtakanna hjá ríkissáttasemjara í gær. Í tilkynningu segir að samkvæmt áætluninni skal ríkissáttasemjari taka að sér stjórn viðræðna vísi eitthvert aðildarsamtaka ASÍ kjaradeilu sinni til hans. Starfsgreinasambandið, utan svokallaðs Flóabandalags, hefur nú vísað kjaradeilu sinni til sáttasemjara og færast því viðræður um sameiginleg mál undir stjórn hans. Með sameiginlegum málum er átt við almenn hagsmunamál vinnuveitenda og viðsemjenda þeirra. SA hafa lagt áherslu á að koma fjárfestingum af stað sérstaklega í útflutningsgreinum, afnám gjaldeyrishafta, breytingu á skattalögum og fleiri aðgerðir til að auka hagvöxt, fjölga störfum og bæta lífskjör fólks. Í síðustu viku lögðu Samtök atvinnulífsins fram meginmarkmið SA þar sem m.a. er að finna ofangreind mál og kynntu þau leiðtogum ríkisstjórnarflokkanna. Það sama gerði Alþýðusamband Íslands en báðir aðilar bíða nú eftir því að ríkisstjórnin svari því hvort og með hvaða hætti hún er tilbúin að koma að gerð nýrra kjarasamninga. Af hálfu beggja aðila er það forsenda þess að hægt verði að semja til þriggja ára eins og SA hafa lagt áherslu á og skapa með því frið á vinnumarkaðnum og eyða óvissu. Það er einnig grundvöllur þess að fjárfestingar geti hafist í atvinnulífinu, hagvöxtur aukist og störf verði til. Um áramót voru 13.972 án atvinnu.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira