AGS vill að gjaldeyrishöftunum verði aflétt af varkárni 18. janúar 2011 12:07
Ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) fær einhverju um það ráðið mun aflétting gjaldeyrishafta taka tímann sinn og verða framkvæmd af mikilli varfærni. Sjóðurinn telur áhættu sem tengist of hröðu afnámi haftanna einn af lykiláhættuþáttum varðandi framgang efnahagsáætlunar sjóðsins og stjórnvalda. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að sjóðurinn virðist hafa áhyggjur af því að krónan kunni að gefa talsvert eftir verði farið of hratt í afnámið. Leggur AGS áherslu á endurbætur á peningastefnunni í tengslum við þær endurskoðanir á efnahagsáætluninni sem eftir eru. Þá telur sjóðurinn mikilvægt að Seðlabankinn setji aukinn kraft í gjaldeyriskaup sín í því skyni að stækka gjaldeyrisforðann, en líklega munu Seðlabankamenn halda að sér höndum hvað það varðar þar til krónan sækir í sig veðrið að nýju. Má búast við að ný áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna, sem birta á ríkisstjórn fyrir febrúarlok, verði í hinum varfærna anda sem AGS boðar. Seðlabankinn útbýr áætlunina í samvinnu við starfshóp þar sem starfsmenn bankans, efnahags- og viðskiptaráðuneytis, fjármálaráðuneytis og FME eiga sæti. Auk þess verður utanaðkomandi sérfræðingur fenginn til aðstoðar. Þótt áætlunin verði tæpast tímasett mun hún innihalda lýsingu á framkvæmd haftaafléttingar og útskýra hvernig metið verður hvort hin ýmsu skilyrði fyrir frekari skrefum í þá átt séu fyrir hendi. Slík skilyrði snúa til að mynda að sjálfbærni ríkisskulda og getu til þess að sækja lánsfé á erlenda markaði, nægu framboði innlendra fjárfestingarkosta og stöðugleika fjármálakerfisins. Í viljayfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við 4. endurskoðun lýstu þau vilja sínum til þess að auka gjaldeyriskaup Seðlabankans á markaði þar sem nauðsynlegt er að stækka þann hluta gjaldeyrisforða bankans sem ekki er tekinn að láni. Tekur AGS undir þetta sjónarmið, enda sé útlitið gott varðandi greiðslujöfnuð, og þar með innflæði gjaldeyris, á næstunni.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira