Íbúðalánasjóður átti 1.070 íbúðir um áramótin 12. janúar 2011 06:00 Íbúðalánasjóður eignaðist 723 íbúðir á nýliðnu ári. Fréttablaðið/pjetur
Íbúðalánasjóður keypti 723 íbúðir á nýliðnu ári og átti 1.070 íbúðir um áramótin. Þetta er þrjátíu íbúðum minna en áætlanir sjóðsins gerðu ráð fyrir. Þetta er rétt rúmlega þrefalt fleiri íbúðir en sjóðurinn átti í lok árs 2009 en þá átti hann 347 íbúðir. Ásta H. Bragadóttir, fráfarandi aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir niðurstöðuna nokkurn veginn á áætlun. Hún gerir ráð fyrir að aðgerðir stjórnvalda um lausn á skuldavanda heimilanna muni skila sér í því að sjóðurinn eignist færri íbúðir á þessu ári en í fyrra. Þá er búist við að fyrirhugað kaupleigukerfi valdi því að íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs fækki á árinu. Gert er ráð fyrir að Íbúðalánasjóður eigi 882 íbúðir um næstu áramót. „Við höfum ekki formlega endurskoðað þær áætlanir,“ segir Ásta. Staða sjóðsins var slæm skömmu fyrir áramótin. Eigið fé hans nam 10,1 milljarði króna í lok árs 2009 og stóð eiginfjárhlutfallið þá í 3,0 prósentum. Um mitt síðasta ár var eigið féð komið í 8,4 milljarða og stóð eiginfjárhlutfallið í 2,1 prósenti. Það á lögum samkvæmt að vera 5,0 prósent. Alþingi samþykkti fyrir mánuði að bæta eiginfjárstöðu sjóðsins og veita til hans 33 milljarða króna. Upphæðin færist í ársreikning fyrir nýliðið ár. Vinna við gerð reikningsins stendur nú yfir. - jab
Mest lesið Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Segist engin deili kunna á rafmyntajöfri sem hann náðaði Viðskipti erlent Nvidia metið á 615 billjónir króna Viðskipti erlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent Umfangsmiklar uppsagnir hjá Amazon Viðskipti erlent Fresta reynsluflugi rafmagnsflugvélar Viðskipti erlent Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Sjá meira