Spkef býður breytingar á lánum til stofnfjárkaupa 12. janúar 2011 14:58
Ákveðið hefur verið að bjóða upp á breytingar á skilmálum lána þeirra einstaklinga sem keyptu stofnfjárbréf í sparisjóðum með láni frá Spkef sparisjóði. Í tilkynningu segir að stofnfjárbréfalánum í íslenskum krónum verður skilmálabreytt með þeim hætti að skuldabréfin verða færð í upphaflegan höfuðstól að viðbættum 3,75% óverðtryggðum vöxtum frá útgáfudegi skuldabréfanna. Erlend lán verða færð á upphaflegt gengi gjaldmiðla að viðbættum 3,75% óverðtryggðum vöxtum og þau færð yfir í íslenskar krónur. Vextir reiknast frá upphaflegum útgáfudegi. Lánin verða óverðtryggð til allt að 25 ára Óski lántakendur eftir því að staðgreiða lánin að lokinni skilmálabreytingu verður að auki boðið upp á afslátt sem nemur 10 % af heildarstöðu. Þessi leið verður opin öllum þeim einstaklingum sem tóku fyrrnefnd lán. Lántakendur þurfa að koma í eitthvert af útibúum sparisjóðsins til að ganga frá skilmálabreytingunni. Spkef sparisjóður hefur kynnt breytingar á greiðsluskilmálum stofnfjárlána einstaklinga hjá sparisjóðnum. Helsta breytingin er sú að höfuðstóll mun taka mið af stöðunni eins og hún var í upphafi lánstímans. Lántakendum verður boðið að greiða skuldina með útgáfu skuldabréfs til 25 ára á lágum óverðtryggðum vöxtum (3,75%). Þeim lántakendum sem hins vegar kjósa að greiða upp lán sín nú, eftir áðurnefndar breytingar á höfuðstól og vöxtum lánsins, verður boðinn aukalegur staðgreiðsluafsláttur(10%). Unnið hefur verið að því að finna leið til að takast á við þann vanda sem við er að eiga vegna skulda fyrrum stofnfjáraðila í sparisjóðum sem nú eru í eigu ríkisins. Ný stjórn og stjórnendur Spkef sparisjóðs hafa unnið að úrlausn málsins. Leitast hefur verið við að mæta vanda þessa hóps lántakenda með sértækum aðgerðum. Lögð hefur verið áhersla á að lántakendur njóti jafnræðis. Lántakendum er bent á að kynna sér möguleg skattaleg áhrif skilmálabreytinganna en ekki liggja fyrir nein bein fordæmi fyrir því með hvaða hætti ríkisskattstjóri muni meðhöndla aðgerðir sem þessar. Stofnfjárbréfalánum í íslenskum krónum verður skilmálabreytt með þeim hætti að skuldabréfin verði færð í upphaflegan höfuðstól að viðbættum 3,75% óverðtryggðum vöxtum frá útgáfudegi skuldabréfanna. Erlend lán verða færð að upphaflegu gengi gjaldmiðla að viðbættum 3,75% óverðtryggðum vöxtum og þau færð yfir í íslenskar krónur. Vextir reiknast frá upphaflegum útgáfudegi. Óski lántakendur eftir því að staðgreiða lánin að lokinni skilmálabreytingu verði að auki boðið upp á afslátt sem nemur 10 % af heildarstöðu. Lánin sem boðin verða óverðtryggð til allt að 25 ára. Tekið er tillit til allra innborgana á lánin, þ.m.t. inngreidds arðs. Innborganir bera sömu vexti og lánin, eða 3,75%. Sú reikniaðferð samræmist framkvæmd fjármálafyrirtækja innan SFF við leiðréttingu erlendra lána, þar sem höfuðstóll annars vegar ber vexti, innborganir hins vegar og uppgjörsupphæð mynda nýjan höfuðstól. Þessi leið með breyttum skilmálum lána nær til allra þeirra einstaklinga sem stofnuðu til skuldar við Sparisjóðinn í Keflavík vegna stofnfjárkaupa, og heyra nú undir Spkef sparisjóð. Stefnt er að því að búið verði að ganga frá skilmálabreytingunum að fullu fyrir febrúarlok.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira