Járnblendið óbeint til stjórnvalda í Kína 12. janúar 2011 03:00 Forstjóri Elkem Ísland, sem rekur Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga, segir ekkert benda til annars en að starfsemi í verksmiðjunni verði óbreytt þrátt fyrir nýja eigendur. Fréttablaðið/GVA
Kínverska fyrirtækið China National Bluestar hefur keypt norska fyrirtækið Elkem AS, móðurfélag Elkem Ísland ehf., sem rekur Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Kínverska ríkisfyrirtækið ChemChina Corporation á 80 prósenta hlut í China National Bluestar, en bandaríska fjárfestingarfyrirtækið Blackstone Group á 20 prósenta hlut. Óbeint má því segja að Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga sé komin í meirihlutaeigu kínverska ríkisins. Elkem var í eigu norska stórfyrirtækisins Orkla, sem seldi Elkem á tvo milljarða Bandaríkjadala í reiðufé, sem jafngildir um 238 milljörðum króna. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki kínverskra stjórnvalda og samkeppnisyfirvalda í Noregi. „Ef við horfum á þetta til einhverra ára verða engar breytingar hjá okkur tengdar þessu,“ segir Einar Þorsteinsson, forstjóri Elkem Ísland. Hann óttast ekki að verksmiðjunni á Grundartanga verði lokað eða hún færð til Kína. Slíkt sé einfaldlega ekki fýsilegur kostur, auk þess sem verksmiðjan þjóni nær eingöngu mörkuðum í Evrópu. „Við erum búin að vera í uppbyggingu hér á undanförnum árum eftir tímabil þar sem lítið var gert. Verksmiðjan hér er komin í ágætis stand og engin efni til að gera eitt né neitt,“ segir Einar. Samkvæmt yfirlýsingu frá Orkla eru fjórir hlutar Elkem-samstæðunnar innifaldir í kaupunum: Elkem Silicon Materials, Elkem Foundry Products, Elkem Carbon og Elkem Solar. Orkla heldur hins vegar áfram Elkem Energi. Kaupin munu ekki hafa tilfinnanleg áhrif á þær verksmiðjur sem Elkem hefur rekið, samkvæmt yfirlýsingu sem birt er á vef Orkla. „Ég sé ekki að það breyti neinu fyrir okkur Íslendinga hvort fyrirtækið sé í eigu Kínverja eða Norðmanna, þetta er einn erlendur einkaaðili að selja öðrum erlendum einkaaðila,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. „Við erum með okkar regluverk og þessir nýju eigendur þurfa að fylgja því, eins og Norðmennirnir hafa gert hingað til,“ segir Katrín. „Svo getur maður líka séð það jákvæða við þetta, að fyrirtæki á Íslandi skuli vera álitið góður fjárfestingarkostur. Það hljóta að vera jákvæðar fréttir fyrir okkur á Íslandi.“ brjann@frettabladid.is
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira