Áhættuálagið hækkar mest á Ísland af Evrópuþjóðum 12. janúar 2011 11:52
Skuldatryggingaálagið á Ísland hefur hækkað mest meðal Evrópuþjóða að undanförnu hvort sem miðað er við í punktum talið eða hlutfallslega. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Eins og greint var frá á visir.is í morgun hefur skuldatryggingaálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands hækkað nokkuð á undanförnum dögum. Í lok dags í gær stóð álagið til fimm ára í 308 punktum (3,08%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni en viku áður var álagið komið niður í 257 punkta sem er með því lægsta sem það hefur farið niður í frá bankahruninu um haustið 2008. Í Morgunkorninu segir að sömu sögu er að segja um skuldatryggingaálag ríkissjóðs til eins árs, sem stóð í gær í 366 punktum en var viku áður 307 punktar. Þessi hækkun á skuldatryggingaálagi Íslands er ekkert einsdæmi á meðal ríkja í Vestur Evrópu. Þannig hefur álagið hækkað á öll ríki þessa heimshluta á tímabilinu að Hollandi undanskildu. Í gær stóð meðaláhættuálagið til fimm ára á ríki Vestur Evrópu í 234 punktum sem er tæpum 13 punktum hærra en það stóð í fyrir viku síðan. Þó lækkaði það nokkuð frá deginum áður en þá stóð meðalálagið í 240 punktum sem er það hæsta sem það hefur farið upp í. „Engu að síður hefur álagið á Ísland hækkað mest í þetta sinn, hvort sem miðað er við í punktum talið eða hlutfallslega," segir í Morgunkorninu. „Við teljum þó líklegt að þessi hækkun tengist ekki sérstökum innlendum þáttum, þar sem benda má á fleiri þætti sem þarna geta haft áhrif sem teljast til jákvæðra tíðinda fremur en neikvæðra. Nærtækast er að nefna að fjórða endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er í höfn, auk þess sem ekki er ólíklegt að samkomulag náist loksins um Icesave nú í mánuðinum. Teljum við því litla undirstöðu fyrir þessari hækkun álagsins að þessu sinni og að hún sé því aðeins tilfallandi og komi til með tíð og tíma að ganga til baka."
Tengdar fréttir Skuldatryggingaálagið rýkur upp að nýju Skuldatryggingaálag á íslenska ríkið hefur rokið upp að nýju og mælist nú 308 punktar. Þetta er veruleg hækkun á skömmum tíma því í síðustu viku fór álagið niður í 259 punkta. 12. janúar 2011 10:08 Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Fleiri fréttir Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Sjá meira
Skuldatryggingaálagið rýkur upp að nýju Skuldatryggingaálag á íslenska ríkið hefur rokið upp að nýju og mælist nú 308 punktar. Þetta er veruleg hækkun á skömmum tíma því í síðustu viku fór álagið niður í 259 punkta. 12. janúar 2011 10:08