Mikil sala raftækja fyrir jólin 12. janúar 2011 13:55
Sala á raftækjum í desember jókst um 18,5% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 6,1% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á raftækjum lækkaði um 10,5% frá desember 2009. Þetta kemur fram í yfirliti frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að velta í dagvöruverslun jókst um 1,2% á föstu verðlagi í desember miðað við sama mánuð í fyrra og um 1,7% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta dagvöruverslana í desember saman um 1,4% frá sama mánuði árið áður. Verð á dagvöru hækkaði um 0,5% á síðastliðnum 12 mánuðum. Sala áfengis dróst saman um 7,0% í desember miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 2,1% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í desember 13,5% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 5,2% hærra í desember síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Fataverslun var 7,0% minni í desember miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og minnkaði um 8,2% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta fataverslunar í desember saman um 13,6% frá sama mánuði árið áður. Verð á fötum lækkaði um 1,2% í desember síðastliðnum frá sama mánuði ári fyrr. Velta skóverslunar minnkaði um 6,2% í desember á föstu verðlagi og um 2,3% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði um 4,1% frá desember í fyrra. Velta húsgagnaverslana var 7,7% minni í desember en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og minnkaði um 4,4% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 3,6% hærra í desember síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra. Velta sérverslana með rúm jókst í desember um 2,8% frá sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna var 25,9% minni í desember síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Í yfirlitinu segir að ein ástæða þess að sala raftækja jókst meira en sala á öðrum hefðbundnum jólavörum getur verið sú að verð á raftækjum var 10,5% lægra en í desember fyrir ári. Líklegt er að innkaupaverð á raftækjum hafi lækkað sem hefur skilað sér í neytendaverði þar sem gengi krónunnar hefur styrkst að undanförnu. Sala raftækja hefur farið ört vaxandi frá því um mitt árið 2010.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira