300 milljarða hagkerfi í 101 7. mars 2011 06:00
Virðisaukaskattskyld velta fyrirtækja í 101 Reykjavík var liðlega 200 milljarðar króna árið 2010. Þetta er niðurstaða úttektar Ríkisskattstjóra sem Jakob Frímann Magnússon, framkvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar, gekkst fyrir. Sambærileg athugun hefur ekki farið fram áður. „Þegar velta fjögurra útibúa fjármálafyrirtækja og útsvar þúsunda íbúa, tryggingargjöld rekstaraðila og fasteignagjöld sömu aðila eru meðtalin er ekki óvarlegt að áætla að velta miðborgarinnar losi 300 milljarða þegar allt er talið,“ segir Jakob, sem vildi með úttektinni undirstrika hlutverk miðborgarinnar og mikilvægi svæðisins til hagkerfisins og ímyndar Íslands. Jakob segir tölfræðina hafa komið nokkuð á óvart en þó ekki þegar haft sé í huga að miðborgin sé fjölsóttasta svæði á Íslandi. „Í þessu samhengi er hægt að segja að það væri í engu ofgert við miðborgina þótt framlög til hreinsunar, öryggisgæslu og viðhalds væru hlutfallslega hærri en nú er. Á það bæði við um borg og ríkisvald. Jakob minnir á að 150 milljónum króna hafi verið varið til að andlitslyftingar miðborgarinnar árið 2008, en bágborið ástand miðborgarinnar var þá þeim tíma mjög til umræðu. „Það er skýrt samband á milli öryggiskenndar fólks hvort gengið er um í hreinu og sæmilega vel til höfðu umhverfi eða hvort allt er í niðurníðslu. Þetta hefur bein áhrif á hvort og hversu lengi fólk vill dvelja á svæðinu og hefur því bein áhrif á verslun og þjónustu. Þeir sem lifa og starfa á svæðinu vilja meiri sýnileika löggæslunnar og það verður að finna leiðir til þess að svara því kalli,“ segir Jakob. Úttekt Ríkisskattstjóra nær til ársins 2010 en 1.641 virðisaukaskattsnúmer er að baki veltu fyrirtækja. Póstnúmerið 101 nær til útflutningsfyrirtækja eins og HB Granda, sem Jakob vill að menn hafi hugfast þegar rýnt er í niðurstöðurnar. „Og umsvifin aukast í sumar þegar nýtt tónlistar- og ráðstefnuhús opnar dyrnar og uppbyggingu í miðbænum lýkur,“ segir Jakob. Jakob minnir á umræðu um bágborið ástand fjölfarinna ferðamannastaða en Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra kynnti um miðjan febrúar að 500 til 700 milljónum yrði varið á þessu ári til úrbóta. „Það fyrsta sem ferðamaðurinn sér af Íslandi er í mörgum tilfellum miðbær Reykjavíkur. Því ræður ásýnd hans miklu um upplifun ferðamanna sem verða 600 þúsund á þessu ári, gangi spár eftir. Þetta verður að hafa hugfast.“ - shá
Mest lesið Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Sjá meira