Svalasti Porsche heimsins til sölu 18. mars 2011 09:19
Það er erfitt að ímynda sér svalari Porsche en þann sem settur verður á uppboð í Kaliforníu í sumar. Um er að ræða Porsche 911 S sem leikarinn Steve McQueen ekur í upphafsatriði myndarinnar Le Mans sem frumsýnd var árið 1971. Le Mans er ein þekktasta kappakstursmynd sögunnar og Steve McQueen var einn svalasti leikari sögunnar. Þar að auki var McQueen þekktur fyrir ást sína á glæsibílum en hann átti m.a. samskonar Porsche og þann sem selja á og notaði hann raunar til að keyra í og úr vinnu sinni við Le Mans. Þar að auki má nefna að McQueen átti einnig Jagúar XKSS árgerð 1956, Mini Cooper S árgerð 1961, Mercedes Benz 300 SEL 6,9 árgerð 1972 og minnst einn Ferrari af gerðinni GTB/4. Þá var einnig að finna í bílskúr McQueen bíl af gerðinni Shelby Cobra 289 en þann bíl var leikarinn með í láni frá bílasmiðnum Carrol Shelby. Porsche 911 S sem seldur verður í sumar er í eigu Porsche safnara og mun vera mjög vel með farinn og í upprunalegu standi sínu. Það er ekkert lágmarksverð sett á þennan bíl fyrir uppboðið.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira