Uppskeruhátíð auglýsingagerðamanna 4. mars 2011 00:01 Þorsteinn Guðmundsson vakti athygli í auglýsingum vegna Mottumars.
Í kvöld fór fram hin árlega afhending íslensku auglýsingaverðlaunanna, Lúðurinn. Auglýsingastofurnar Íslenska, Fíton og Hvíta húsið hlutu flest verðlaun eða þrjá lúðra hver stofa. Næstar komu auglýsingastofurnar HN: Markaðssamskipti og Jónsson & Le'macks með tvenn verðlaun hver. Lúðurinn er veittur í 16 flokkum þar sem auglýsingar sem skara fram úr á árinu eru verðlaunaðar, en hugmyndin á bakvið auglýsinguna og útfærsla hennar ráða úrslitum. ENNEMM fékk verðlaun í flokki útvarpsauglýsinga fyrir auglýsinguna „Klappari" sem unnin var fyrir Símann. Vefhönnunarfyrirtækið Skapalón sigraði í flokki vefauglýsinga með vefborðann „Heilabrot námunnar" en Landsbankinn var verkkaupi. Þá hlaut auglýsingastofan Pipar-TBWA lúðurinn fyrir besta viðburðinn, sem var vélsleðastökk sem verslunin Ellingsen stóð fyrir. Íslenska auglýsingastofan hlaut Áruna, verðlaun sem veitt eru fyrir árangur í kynningu á vöru, fyrir kynningarefni sem unnið var fyrir veitingastaðinn Hamborgarafabrikkuna. Að auki fékk Íslenska verðlaun fyrir bestu auglýsingaherferðina, Inspired by Iceland, sem unnin fyrir Íslandsstofu. Inspired herferðin fékk einnig lúður í svokölluðum opnum flokki og voru lúðrarnir þá orðnir þrír sem féllu í skaut Íslensku auglýsingastofunnar. Hvíta húsið átti bestu auglýsinguna í flokknum almannaheillaauglýsingar fyrir aðra miðla. Auglýsingin var gerð fyrir Sameinuðu þjóðirnar en yfirskrift hennar var „Dear world leaders – we are still waiting". Að auki hlaut Hvíta húsið verðlaun fyrir besta markpóstinn, „Skinkubréf" sem var hannaður utan um hluthafaskirteini framleiðslufyrirtækisins Marel og einnig fyrir umhverfisauglýsinguna, „Hey, ostar" sem framleidd var fyrir Mjólkursamsöluna. Alls þrír lúðrar hjá Hvíta húsinu. Í flokki vörumerkja bar Fíton sigur úr býtum með merkið Íslandsfar sem unnið var fyrir Íslandsstofu. En það voru ekki einu verðlaun Fíton. Auglýsingaherferð fyrir Ölgerðina vegna Polar Beer, sem Fíton vann í samvinnu við Miðstræti, bar sigur úr býtum í vefkosningu á mbl.is. Síðast en ekki síst fékk Fíton verðlaun fyrir besta veggspjaldið sem hannað var í tengslum við þátttöku Íslands í bókamessunni í Frankfurt. HN Markaðssamskipti sigraði í flokknum almannaheillaauglýsingar fyrir ljósvakamiðla. Auglýsingin var gerð fyrir Krabbameinsfélagið í tengslum við herferðina Mottu mars og var með yfirskriftinni: „Ég þekki Hveragerði eins og punginn á mér". HN Markaðssamskipti hlutu einnig hin eftirsóttu Áru- verðlaun fyrir herferð til kynningar á þjónustu vegna vinnu sinnar við Mottu mars herferðina. En Áran er veitt fyrir herferð sem talin er hafa skilað mestum árangri. Jónsson & Le'macks fengu tvenn verðlaun, í flokki sjónvarpsauglýsinga fyrir auglýsinguna „Hvar er samkeppnin?" og fyrir bestu dagblaðaauglýsinguna „Eignatengsl", en báðar auglýsingarnar voru unnar fyrir fjarskiptafyrirtækið Alterna.
Ímark Mest lesið Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Halla þótti standa sig best Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Innlent Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Fleiri fréttir Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri Sjá meira