Breskir háskólanemar vista heimaverkefnin í Hafnarfirði 19. janúar 2011 00:01 Jón Viggó Áhugi hefur aukist á því ytra að vista gögn í íslenskum gagnaverum, segir framkvæmdastjóri Thor Data Center.Fréttablaðið/Vilhelm
Forsvarsmenn Thor Data Center, gagnavers í Hafnarfirði, hafa undirritað samkomulag við breska upplýsingatæknifyrirtækið HRC Cube um hýsingu á heimaverkefnum þúsundum breskra háskólanema. HRC Cube, sem IBM í Bretlandi stendur á bak við, sérhæfir sig í tækniþróun fyrir menntakerfið ytra og heldur utan um netumhverfi fjölda breskra háskóla. Ekki liggur fyrir nákvæmt verðmæti samningsins. Hann er talinn geta numið nokkuð hundruð milljónum króna. Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Thor Data Center, hefur verið í Bretlandi upp á síðkastið og kynnt græna hýsingu gagnavera hér. Hann segir áhuga á vistun gagna hér hafa aukist mikið enda farið að þrengja um gagnaverspláss ytra. Sérstaklega eigi þetta við um opinbera geirann. Hann segir áhugann ekki síst hafa kviknað eftir að Alþingi samþykkti undanþágur frá skattareglum fyrir gagnaver hér rétt fyrir áramótin. „Þær höfðu mikið að segja. Við finnum að mörg mál sem voru stopp hafa lifnað við á ný," segir hann. Í breytingu á lögum um virðisaukaskatt fyrir gagnaver var reglum breytt á þann veg að þeir sem hýsa gögn í gagnaverum þurfa ekki að greiða virðisaukaskatt af búnaði sem þeir flytja hingað auk þess sem viðskiptavinir gagnavera ytra eru undanþegnir virðisaukaskatti. Þetta er í samræmi við lög og reglur innan Evrópusambandsins. - jab
Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira