Aon: Pólitísk áhætta fyrir fjárfesta hefur aukist á Íslandi 19. janúar 2011 13:40
Samkvæmt nýju áliti frá alþjóðlega áhættumatsfyrirtækinu Aon Risk Solutions hefur pólitísk áhætta fyrir viðskipti og fjárfestingar aukist á Íslandi á þessu ári. Áhættan er metin í meðallagi (medium) en hún var í lægra meðallagi (medium low) í fyrra og árið 2009 en lítil (low) árið 2008. Aon framkvæmir þetta áhættumat sitt í samvinnu við viðskiptablaðið Financial Times og má nálgast niðurstöðurnar á vefsíðu blaðsins www.ft.com. Það sem Aon nefnir sem helstu áhættuþættina á Íslandi eru gjaldeyrisviðskiptin, þjóðfélagslegur órói eins og verkföll og mótmæli, hættan á greiðslufalli ríkissjóðs og pólitísk afskipti. Samkvæmt Aon er Ísland á svipuðum slóðum hvað þessa áhættu varðar í ár og nokkur lönd í Mið- og Suður Ameríku, Rússland, Kína, Egyptaland og Tyrkland. Í frétt um málið í blaðinu kemur m.a. fram að dregið hefur úr áhættunni í löndunum sem liggja fyrir sunnan Sahara eyðimörkina. Löndum á borð við Kenía, Mósambík, Rúanda og Úganda. Þrátt fyrir að áhættan hafi versnað í 19 löndum á milli ára er ástandið í heiminum í heild betra og stöðugra en í fyrra. Skýringin er að af þessum 19 löndum eru 13 smáríki í Karabíska hafinu.
Mest lesið Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Ríteil Kids hættir rekstri Viðskipti innlent Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Sjá meira