Megnið fer á fiskiflotann og bílana 19. janúar 2011 00:01
Níu af hverju tíu lítrum af innfluttu eldsneyti eru notaðir við fiskveiðar og í samgöngum, að því er fram kemur á vef Orkuseturs. „Þessir tveir flokkar nota álíka mikið en hlutur samgangna hefur þó farið vaxandi með auknum fjölda bifreiða,“ segir þar og bent er á að fjöldi bíla hér á landi hafi farið úr 70 þúsund bifreiðum árið 1974 í 200 þúsund bíla árið 2004. „Árleg olíunotkun farartækja hér á landi er um 200 þúsund tonn sem er um 650 kílógrömm á hvern íbúa landsins,“ segir jafnframt á vef Orkuseturs og bent á að í einni olíutunnu séu um 120 kíló af olíu. Því þurfi að flytja inn tæplega sex tunnur fyrir hvern landsmann á ári hverju vegna notkunar í samgöngum. Þá segir á vefnum að mjög mikilvægt sé að leita allra leiða til að draga úr eldsneytisnotkun. „Í fyrsta lagi er olíukostnaður stærsti orkuútgjaldaliður meðalheimila og í öðru lagi leiðir brennsla olíu til útblásturs gróðurhúsaloftegunda. Brennsla jarðeldsneytis stuðlar að neikvæðum loftslagsbreytingum sem eru að verða stærsta sameiginlega umhverfisógn heimsins. Við bruna jarðefnaeldsneytis, sem að mestum hluta er kolefni, myndast mikið af koldíoxíði (CO2). Koldíoxíð er ein þeirra lofttegunda sem valda auknum gróðurhúsaáhrifum en 70 prósent af útblæstri koldíoxíðs eru tilkomin vegna brennslu jarðefnaeldsneytis.“
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira