Viðskipti innlent

Íbúðaverð lækkaði í borginni í desember

Íbúðaverð í borginni lækkaði undir lok síðasta árs. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 302,6 stig í desember í fyrra og lækkar um 1,2% frá fyrra mánuði.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,4%, síðastliðna 6 mánuði lækkaði hún um 1,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún 0,2%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×