Verðbólgan étur upp launahækkanirnar Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 24. apríl 2011 18:30
Kaupmáttur hefur dregist saman tvo mánuði í röð, en ef engar launahækkanir koma til munu verðlagshækkanir áfram rýra kjör almennings. Forseti ASÍ segir ekki hægt að draga launahækkanir lengur. Það kemur kannski einhverjum á óvart, en laun í landinu hafa hækkað um 16 prósent í kreppunni frá því í ársbyrjun 2008. Samt kvarta margir undan því að hafa ekki nóg á milli handanna. Hvernig er hægt að útskýra það? Svarið er að krónan féll og vörur í landinu urðu dýrari og á sama tíma og laun hafa hækkað um 16 prósent hefur verðlag í landinu hækkað um 31 prósent. Launatékkinn dugar því skemur nú, en hann gerði fyrir þremur árum, þrátt fyrir að hann hljóði upp á hærri upphæð. Kaupmáttur mælir þetta samspil launa og verðbólgu, og sýnir hvort heimilin geti keypt minna eða meira af vörum á hverjum tíma en áður. Kaupmáttur náði hámarki sínu í janúar 2008, en við getum ímyndað okkur að þá hafi heimilin getað keypt hundrað einingar af því sem þau vantaði. Og svona hefur kaupmátturinn þróast síðan þá. Hann náði botni sínum í maí á síðasta ári, en tók þá snarpt stökk vegna samningsbundinna launahækkana. Kaupmáttur hefur svo verið nokkuð stöðugur, en er nú aftur á niðurleið þar sem verðlag hækkaði nokkuð í febrúar og mars, án þess að laun fylgdu á eftir. Meðalheimilið er þó betur statt með launin sín í dag, en það var fyrir ári. Kjaraviðræður á almennum markaði eru strand eftir að Alþýðusambandið yfirgaf samningaborðið vegna krafna Samtaka atvinnulífsins um tengingu samninga við breytingar á fiskveiðilöggjöfinni. Ef engar launahækkanir koma til, munu allar verðlagshækkanir augljóslega verða til þess að skerða kaupmátt almennings enn frekar. Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, segir mjög mikilvægt að lokið verði við gerð nýrra kjarasamninga sem fyrst. ASÍ leggi á það mikla áherslu.
Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Sjá meira