Atvinnuleiðin strandar á ríkisstjórninni 20. apríl 2011 10:28
Nú hafa aðilar vinnumarkaðarins verið að hugsa sinn gang varðandi atvinnuleiðina, þriggja ára kjarasamning sem byggir á auknum fjárfestingum til þess að koma Íslandi út úr kreppunni. Þegar horfið var frá verki sl. föstudagskvöld var ljóst að hvorki var unnt að ná samstöðu um atvinnuleiðina né samkomulagi til skamms tíma. Atvinnuleiðin strandar á ríkisstjórninni segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs SA sem kemur út í dag. „Skammtímasamningur strandar á því að SA vilja að í honum felist að aðilar vinni áfram saman að atvinnuleiðinni meðan Alþýðusambandið vill að með honum sé ákveðið að hefja nýjar deilur og setja framhaldið á vinnumarkaðnum í enn meiri óvissu. Merkilegt er að hvorki í viðræðum um atvinnuleiðina né um skammtímasamkomulag strandaði svo teljandi væri á launatölum," segir Vilhjálmur. Fjallað er um málið á vefsíðu SA. Vilhjálmur segir að ríkisstjórninni verði að auðnast að ná sátt um málefni sjávarútvegsins. Engin ríkisstjórn hafi verið jafn nálægt víðtækri sátt um sjávarútvegsmál og því væri bagalegt ef það mistækist. „Samtök atvinnulífsins og LÍÚ/SF hafa lagt fram ákveðnar tillögur sem allar eru umsemjanlegar ef það mætti verða til þess að hreyfa málið. Ennþá hefur ríkisstjórnin ekki viljað stíga fram og taka í útrétta sáttahönd samtakanna. En sáttahönd SA og LÍÚ/SF er áfram útrétt og vonandi sér ríkisstjórnin að það er hvorki í þágu sjávarútvegsins né þjóðarinnar að hafa málin í núverandi stöðu,“ segir Vilhjálmur. „Hætt er við því að upplausn verði á vinnumarkaðnum ef mál skýrast ekki strax eftir páska. Launafólk bíður óþreyjufullt eftir niðurstöðu og sama gildir um atvinnulífið. Fyrirtækin í landinu tapa stórlega á óvissu og kyrrstöðu í fjárfestingum. Klukkan gengur ekki síður á atvinnulífið en starfsfólkið. Allir tapa. Besta leiðin er atvinnuleiðin. Á henni græða allir. Með stórauknum fjárfestingum skapast ný störf í bráð og lengd, atvinnuleysi minnkar og tekjur fólks og fyrirtækja aukast. Samtök atvinnulífsins vilja berjast til þrautar fyrir atvinnuleiðinni.“
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira