Viðskipti innlent

Útlán ÍLS jukust töluvert milli ára í mars

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) námu tæpum 2,6 milljörðum króna í mars,þar af voru tæpir 2,3 milljarðar króna vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í mars í fyrra tæpum 1,8 milljörðum króna.

Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu sjóðsins. Meðalútlán almennra lána voru um 10 milljónir króna í mars en um 10,4 milljónir í febrúar síðastliðnum.

Heildarvelta íbúðabréfa nam um 64,3 milljörðum króna í mars samanborið við um 53,5 milljarða í febrúar síðast liðnum.

Greiðslur Íbúðalánasjóðs námu rúmum 7  milljörðum króna í mars, en þar af var afborgun íbúðabréfa um 6,6 milljarðar króna. Uppgreiðslur í mars námu um 976 milljónum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×