Töluverður samdráttur í dagvöruverslun milli ára 14. apríl 2011 09:18
Velta í dagvöruverslun dróst saman um 5,6% á föstu verðlagi í mars miðað við sama mánuð í fyrra og um 4,6% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta dagvöruverslana í mars um 1,2% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 1,1% á síðastliðnum 12 mánuðum. Þetta kemur fram í yfirliti frá Rannsóknarstofu verslunarinnar. Sala áfengis dróst saman í mars miðað við sama mánuð í fyrra en að mestu leiti má rekja samdráttinn til þess að í fyrra fluttist verslun fyrir páska að hluta yfir í mars mánuð því páskar voru þá snemma í apríl. Skýrir það að mestu samdrátt milli ára um 20,0% á breytilegu verðlagi og 20,9% á föstu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í mars 2,7% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 1,1% hærra í mars síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Fataverslun var 13,9% minni í mars miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og minnkaði um 14,8% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta fataverslunar í mars saman um 12,6% frá sama mánuði árið áður. Verð á fötum lækkaði um 1,1% í mars síðastliðnum frá sama mánuði ári fyrr. Velta skóverslunar lækkaði um 8,2% í mars á föstu verðlagi og um 14,9% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm lækkaði um 7,3% frá mars í fyrra. Velta húsgagnaverslana dróst saman um 9,4% í mars frá sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og um 8,3% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 1,2% hærra í mars síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Velta sérverslana með rúm dróst saman í mars um 30,6% frá sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna var 19,9% meiri í mars síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Sala á raftækjum í mars jókst um 18,0% árstíðaleiðrétt á föstu verðlagi sé miðað við sama mánuð síðasta árs. Verð á raftækjum lækkaði um 10,8% frá mars 2010 og skýrir það að hluta til lægri nafnveltu.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Sjá meira