Becromal stendur í víðtækum aðgerðum 15. apríl 2011 12:13
Becromal á Íslandi stendur nú í víðtækum aðgerðum til að bæta umhverfisvernd við aflþynnuverksmiðju sína í Krossanesi við Akureyri. Aðgerðaráætlun var kynnt fyrir Umhverfisstofnun sem hefur staðfest að fyrirtækið hafi bætt úr annmörkum varðandi þætti í starfsleyfi þess. Í tilkynningu segir að Becromal hefur áður beðist afsökunar á því að hafa ekki fylgt skilyrðum starfsleyfisins nægilega vel eftir. Til að tryggja að farið verði vel eftir viðmiðunarreglum og reglugerðum kom Becromal strax á stöðugu eftirliti með frárennslisvatni áður en því er hleypt inn í holræsakerfið. Til að koma í veg fyrir mannleg mistök í framtíðinni hefur þetta eftirlitskerfi nú verið uppfært yfir í afar fullkomið sjálfvirkt greiningar- og öryggiskerfi sem verður að fullu komið í gagnið í júní. Becromal hefur unnið með Verkfræðistofunni EFLU við að koma þessu kerfi á en hún hefur m.a. sérhæft sig á sviði umhverfismála. Áframhaldandi eftirlit með framleiðslu og kerfum er snúa að losun úrgangsefna er í höndum umhverfisfulltrúa Becromal. Einnig hefur fyrirkomulagi við skýrslugerð og tilkynningar verið breytt og regluleg samskipti við yfirvöld verða aukin. Fráfarandi verksmiðjustjóri hefur viðurkennt ábyrgð á því að hafa ekki fylgt kröfum og reglugerð nægilega vel eftir. Hann hefur nú hætt störfum fyrir verksmiðju Becromal Iceland. Með þessum aðgerðum undirstrikar Becromal Group þá miklu áherslu sem fyrirtækið leggur á umhverfisvernd. „Við gerum allt sem er tæknilega og efnahagslega mögulegt til að vernda umhverfið og til að mæta réttmætum kröfum Íslendinga þar að lútandi, sem og starfsmanna okkar og viðskiptavina,“ segir Luciano Lolli, forstjóri Becromal Group og stjórnarmaður Becromal Iceland, en höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Mílanó á Ítalíu. Lolli heimsækir sjálfur verksmiðju Becromal á Íslandi reglulega og hefur yfirumsjón með því að starfsemi fyrirtækisins verði bætt á hraðan og áreiðanlegan hátt. „Sem stór atvinnurekandi á svæðinu viljum við endurheimta það traust sem fólk og yfirvöld báru til okkar og styrkja þannig grunninn að árangursríku samstarfi á Íslandi,“ segir hann.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira