ASÍ hafnar 100 þúsund krónum til launþega 16. apríl 2011 09:05 „
Í dag varð ljóst að ekki tækist að gera kjarasamning til langs tíma á almennum vinnumarkaði. SA buðu því ASÍ að gera kjarasamning til skemmri tíma sem fylgdi 50 þúsund króna eingreiðsla til launþega í byrjun maí með möguleika á þremur 16.700 króna greiðslum til viðbótar í lok júní, júlí og ágúst, samtals 50 þúsund kr.“ Þetta segir í færslu á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins sem sett var á vefinn um miðnættið í gærkvöldi. Þar segir einnig að SA lögðu fram tillögu til umræðu um sameiginlegan rökstuðning fyrir skammtímasamningi og buðu jafnframt að ASÍ legðu fram eigin tillögu ef ekki væri falllist á tillögu SA. Því var hafnað og hurfu fulltrúar ASÍ af vettvangi úr Karphúsinu rétt fyrir miðnætti. „Samningsaðilar hafa undanfarna mánuði stefnt að gerð þriggja ára samnings sem byggði á tilteknum efnahagslegum markmiðum um aukinn hagvöxt, fjölgun starfa, minna atvinnuleysi, verulega auknum fjárfestingum í atvinnulífinu, m.a. í orku- og iðnaðarverkefnum og innviðum samfélagsins. Samtök atvinnulífsins hafa lagt á það áherslu að atvinnuleiðin verði farin út úr kreppunni og starfsumhverfi fyrirtækja verði bætt verulega svo fyrirtæki stór og smá í öllum greinum geti farið að ráða fólk á ný og auka umsvif sín. Samtök atvinnulífsins eru tilbúin til að leggja mikið af mörkum til að gera kjarasamninga til lengri tíma. Að mati aðila vinnumarkaðarins er aðkoma ríkisstjórnarinnar að samningunum nauðsynleg en því miður hafa ekki enn reynst forsendur fyrir langtímasamningi þar sem ríkisstjórnin hefur ekki lagt fram trúverðugar áætlanir um að auka hagvöxt á næstu árum,“ segir á vefsíðunni.
Mest lesið Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Blöskraði dekkjaverð á Íslandi og sparaði sér á þriðja hundrað þúsund Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Sjá meira