Seljanlegar eignir Reykjanesbæjar nema 19 milljörðum 4. apríl 2011 10:35
Helstu peningalegar og seljanlegar eignir Reykjanesbæjar utan lögbundins hlutverks sveitarfélagsins námu 19 milljörðum kr. í lok mars 2011. Stærsta eignin er skuldabréf Magma Energy Sweden að fjárhæð 8,2 milljarðar kr. sem er á gjalddaga 16. júlí 2016. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Þar segir að á fundi Reykjaneshafnar með kröfuhöfum þann 16. mars 2011 kom fram ósk um að Reykjanesbær, sem ábyrgðaraðili hafnarinnar, myndi upplýsa kröfuhafana um fjárhagsstöðu sína. Helstu peningalegar og seljanlegar eignir utan lögbundins hlutverks sveitarfélagsins telja 19 milljarða kr. í lok mars 2011 sem hér segir: Innistæða í Landsbanka Íslands að fjárhæð 2,5 milljarðar kr., sem er bundin ákveðnum skilmálum. Skuldabréf Magma Energy Sweden að fjárhæð 8,2 milljarðar kr., sem er á gjalddaga 16. júlí 2016. Eignarhlutur í HS Veitum er bókfærður á 6,5 milljarða kr. í ársreikningi Reykjanesbæjar 2009. Land og auðlindir undir virkjanasvæði á Reykjanesi sem hefur verið boðið ríkissjóði á 1,8 milljarða kr. Til skoðunar er hvort unnt væri að losa um innistæðu í Landsbanka Íslands og hvort og þá með hvaða hætti unnt væri að nota skuldabréf Magma til að styrkja lausafjárstöðu sveitarfélagsins.Mismunur upp á 9 milljarða Rétt er að setja ofangreinda eignastöðu í samhengi við skuldir sveitarfélagsins, en í ársreikningi fyrir árið 2009 eru tilgreindar 14,1 milljarður kr. í skuldir og skuldbindingar A-hluta, auk 12,1 milljarðs kr.leiguskuldbindingar vegna Eignarhaldsfélagsins Fasteignar og 1,4 milljarða kr. leiguskuldbinding vegna annarra leigusala, eða samtals 27,6 milljarðar kr. Mismunur á stöðu ofangreindra eigna og skuldastöðu m.v. árslok 2009 nemur því tæpum 9 milljörðum kr. Til samanburðar voru tekjur A-hluta á árinu 2009 tæpir 7 milljarðar kr. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um að selja ofangreindar eignir og endanlegt virði við sölu getur verið hærra eða lægra en að ofan greinir. Einnig er rétt að taka fram að ef ráðist yrði í sölu einhverra eigna gæti söluferlið tekið talsverðan tíma.Viðfangsefni á sviði fjármögnunar Helstu viðfangsefni á sviði fjármögnunar sem nú er unnið að sem tengjast sveitarfélaginu eru sem hér segir: Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. á í viðræðum við lánadrottna sína og leiðir Lárus Blöndal, hæstaréttarlögmaður, samninganefnd félagsins. Reykjanesbær er hluthafi í þessu félagi og leigir einnig af því skólahúsnæði og aðrar eignir sem notaðar eru fyrir lögbundna starfsemi sveitarfélagsins. Í ársreikningi Reykjanesbæjar fyrir árið 2009 er tilgreind 12,1 milljarðs króna skuldbinding vegna þessara leigusamninga. Reykjaneshöfn á í viðræðum við lánadrottna sína og hefur ráðið fjármálafyrirtækið Centra Fyrirtækjaráðgjöf hf. sér til aðstoðar í þeim samskiptum. Reykjaneshöfn er B-hluta stofnun sveitarfélagsins og ber Reykjanesbær fulla ábyrgð á öllum skuldum hafnarinnar, en skv. kynningu sem Reykjaneshöfn birti þann 16. mars 2011 nema vaxtaberandi skuldir hennar samtals 4,5 milljörðum króna, fyrir utan viðskiptastöðu við Reykjanesbæ. Reykjanesbæ hefur verið gert að greiða samtals 1,8 milljarða króna í fjármagnstekjuskatt vegna sölu á eignarhlut sínum í HS Orku. Áhöld eru um hvort jafnræðisreglu hafi verið gætt við þessa skattlagningu. Í fjáraukalögum 2010 var samþykkt að ríkið gæti veitt Reykjanesbæ greiðslufrest á þessari skattgreiðslu og samið um greiðslu til lengri tíma en eins árs. Beðið er eftir að Fjármálaráðuneytið kalli til samningafundar vegna þessa máls.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira