Viðskipti innlent

Vöruskiptin hagstæðari í ár en í fyrra

Fyrstu tvo mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 85,1 milljarð króna en inn fyrir tæpa 67,0 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 18,1 milljarði en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 17,8 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 0,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 42,7 milljarða króna og inn fyrir 32,4 milljarða króna. Vöruskiptin í febrúar voru því hagstæð um 10,3 milljarða króna. Í febrúar 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 12,8 milljarða króna á sama gengi.

Fyrstu tvo mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 9,7 milljörðum eða 12,9% meira á föstu gengi  en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 35,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 11,9% meira en á sama tíma árið áður.

Útfluttar iðnaðarvörur voru tæp 60% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 12,7% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða.

Fyrstu tvo mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 9,4 milljörðum eða 16,3 % meira á föstu gengi  en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á eldsneyti, fjárfestingarvöru og hrá- og rekstrarvöru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×