Viðskipti innlent

Eigendur Tottenham og Banque Havilland inn í MP Banka

Annar aðaleigandi enska knattspyrnuliðsins Tottenham Hotspur, Joe Lewis, er í nýjum hluthafahópi MP banka. Einnig mun breska Rowland-fjölskyldan, sem keypti rekstur Kaupþings í Lúxemborg og breytti nafninu í Banque Havilland, vera í hluthafahópnum.

Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag. Þar segir að auk þeirra mun þriðji erlendi fjárfestirinn koma inn í nýjan hluthafahóp bankans. Ekki hefur fengist staðfest hver hann er.

Samkvæmt upplýsingum Viðskiptablaðsins munu erlendu fjárfestarnir eiga allt að 20% hlut í MP banka. Þar af mun Rowlandfjölskyldan eignast um 10% hlut.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×