Brimborg afhentir Ístaki hjólaskóflu í Noregi 2. mars 2011 12:38 Frá vinstri til hægri: Bjarki Jónsson, Jón Þór Þorvaldsson, Sigurður Þór Jónsson og Ólafur Árnason starfsmaður Brimborgar.
Ístak hefur fest kaup á tveimur risahjólaskóflum hjá Brimborg sem verða notaðar við gangnagerð, annarsvegar við Búðarhálsvirkjun og hinsvegar í Noregi en hjólskóflan til verksins í Noregi var einmitt afhent fyrir helgina í Tosbotn í Norður Noregi. Tosbotn er eins og áður segir norðarlega í Noregi, nánar tiltekið eru hnitin 65°19'15'' norður og 12°57'16'' í austur og mátti vel finna það á kuldanum á svæðinu að sögn Ólafs Árnasonar starfsmanns Brimborgar sem var á staðnum. Veður hefur þó verið almennt verið með ágætum. Hitinn sveiflast um og undir frostmarki en það kemur þó ekki að sök þar sem Volvo vinnuvélar eru notaðar við afar krefjandi aðstæður um allan heim. Hjólaskóflan verður notuð við gangnagerð vegna vegaframkvæmda við aðstæður sem svipar nokkuð til vegstæðisins við Ólafsfjarðarmúla fyrir vestan. Vegurinn liggur utan í brattri hlíð sem áhættusamt getur verið að aka og munu göngin verða mikil samgöngubót á þessu svæði í Noregi. Það er sem áður segir Ístak sem vinnur verkefnið og eru göngin kölluð Malvikhammartunnel og verða þau 2,7 kílómetra löng. Göngin verða nánar tiltekið í Tosenfjord og er gert ráð fyrir að gangnagerðinni ljúki í desember á næsta ári. Göngin munu stuðla að betra öryggi vegfarenda en nokkuð er um grjóthrun og snjóflóð í hlíðinni. Volvo hjólaskóflan mun hafa nóg að gera við að flytja 250 þúsund rúmmetra af efni úr göngunum og munu afköst hjólaskóflunnar tryggja góðan framgang verksins. Afar mikilvægt er með vinnutæki sem þessi að þau nýtist sem best og hafa Volvo vinnuvélar afar gott orðspor fyrir að nýta starfsfólk og tíma sem best. Til dæmis má reka hjólaskófluna á vaktakerfi sem þýðir að hún er nánast stanslaust í notkun.
Mest lesið Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Viðskipti innlent Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira