Aflaverðmætið 123 milljarðar fram að desember í fyrra 22. febrúar 2011 09:06
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 123 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2010 samanborið við tæpa 107 milljarða á sama tímabili árið 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um rúma 16 milljarða eða 15,3% á milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks var í lok nóvember orðið 86,7 milljarðar og jókst um 15,8% frá sama tíma árið 2009 þegar aflaverðmætið nam 74,9 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 41,3 milljarðar og jókst um 24% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 14,3 milljörðum og dróst saman um 0,9% milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 10,9 milljörðum, sem er 19,7% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 16,8% milli ára og nam 7,9 milljörðum á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2010. Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 8,6 milljörðum króna í janúar til nóvember 2010, sem er 6,6% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 21,6% milli ára og nam 25,1 milljarði. Verðmæti síldaraflans í janúar til nóvember nam tæpum 10,2 milljörðum sem er 15,8% samdráttur frá sama tímabili árið 2009. Verðmæti makríls nam 7,8 milljörðum samanborið við 4,5 milljarða fyrstu ellefu mánuði ársins 2009. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam rúmum 49,9 milljörðum króna og jókst um 24,8% frá árinu 2009. Aflaverðmæti sjófrystingar voru rúmir 45,4 milljarðar, sem er 20,7% aukning milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 25,6% milli ára og var um 17,6 milljarðar.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Sjá meira