Mesti afgangur af þjónustuviðskiptum frá 1994 28. febrúar 2011 11:52
Alger viðsnúningur hefur orðið í þjónustujöfnuði við útlönd frá hruni, og hafa þjónustuviðskipti við útlönd að jafnaði skilað verulegum afgangi undanfarin misseri eftir verulegan halla þensluárin á undan. Á fjórða ársfjórðungi síðasta árs var um að ræða mesta afgang af þjónustuviðskiptum í krónum talið á þessum árstíma frá árinu 1994. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að samkvæmt nýbirtum bráðabirgðatölum Hagstofunnar var 1,7 milljarða kr. afgangur af þjónustujöfnuði við útlönd á síðasta fjórðungi ársins 2010. Útflutningur á þjónustu nam 68 milljörðum kr. en innflutningur þjónustu nam 66,3 milljörðum kr. Afgangurinn var fyrst og fremst vegna 8 milljarða kr. afgangs á viðskiptum vegna samgangna, en tæplega 7 milljarða kr. halli var á þjónustu tengdri ferðalögum. Mikil árstíðarsveifla er í þjónustujöfnuði við útlönd og þrátt fyrir að afgangurinn hafi ekki reynst ýkja mikill á síðustu mánuðum nýliðins árs er hér um að ræða mesta afgang af þjónustuviðskiptum í krónum talið á þessum árstíma frá árinu 1994. Afgangur af þjónustujöfnuði á árinu 2010 reyndist tæpir 44 milljarðar kr. miðað við þessar tölur. Það þýðir að samanlagður afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd var tæplega 163 milljarðar kr. í fyrra, sem samsvarar ríflega 10% af áætlaðri vergri landsframleiðslu ársins. Er það eilítið minna en sá 11% afgangur sem Seðlabankinn gerði ráð fyrir í nýjustu þjóðhagsspá sinni í febrúarbyrjun. Útlit er fyrir að áfram verði myndarlegur afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd, enda er innlend eftirspurn lítið farin að rétta úr kútnum, raungengi afar lágt, horfur þokkalegar fyrir íslenskan ferðamannaiðnað þegar líður á árið og verð helstu útflutningsafurða hefur hækkað talsvert undanfarið.
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Sjá meira