Engar siðareglur hjá forsetanum ári eftir rannsóknarskýrslu Helga Arnardóttir skrifar 15. mars 2011 18:43
Ekki hafa verið settar siðareglur hjá embætti forseta Íslands en tæpt ár er liðið frá því mælt var með að slíkar reglur yrðu settar í siðfræðikafla skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands var gagnrýndur í siðfræðikafla skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og þótti hafa gengið mjög langt í þjónustu við einstök fyrirtæki og einstaklinga. Í ljósi sögunnar hefði þurft mun meiri aga og reglufestu við ákvarðanatöku, hófsemi í framkvæmdagleðinni, reglur um skráningu fundargerða og óæskileg tengsl hafi í sumum tilvikum verið milli einstaklinga. Í siðferðiskafla skýrslunnar segir að æskilegt væri að forsetaembættið setti sér siðareglur, þar sem meðal annars yrði kveðið á um með hvaða hætti forsetinn veitti viðskiptalífinu stuðning. Skömmu eftir útgáfu skýrslunnar í apríl í fyrra hófst undirbúningur innan forsætisráðuneytisins við setningu siðareglna fyrir ráðherra og opinbera starfsmenn. Lög um það voru samþykkt á síðasta þingi. Þá hefur forsætisráðuneytið ítrekað hvatt til þess að forsetaembættið setti sér siðareglur. Enn bólar ekki á slíkum reglum hjá embættinu. Fréttastofan sendi forsetaembættinu fyrirspurn vegna málsins og virðist sem embættið telji ekki þörf á þeim. Í stuttu svari frá embættinu segir: „Þessi málefni hafa verið rædd en skiptar skoðanir eru meðal sérfræðinga um eðli, inntak og gildi slíkra reglna fyrir þjóðhöfðingja enda spurning um erlend og alþjóðleg fordæmi. Athugun embættisins leiddi t.d. í ljós að engar slíkar siðareglur eru til fyrir þjóðhöfðingja annarra Norðurlanda."
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira