Ríkið þarf að leggja 3,5 milljarða í Byggðastofnun 25. janúar 2011 10:52
Ef miða á við að Byggðastofnun haldi áfram óbreyttri lánastarfsemi má varlega áætlað reikna með að ríkissjóður þurfi að leggja stofnuninni til 3,5 milljarða króna á næstu fimm árum, þar af 2,5 milljarða til að koma eiginfjárhlutfalli hennar í 8%. Þetta kemur fram í greinargerð starfshóps iðnaðarráðherra skipaði í nóvember s.l. til að fjalla um lánastarfsemi Byggðastofnunar. Helstu niðurstöður starfshópsins eru m.a að reynslan sýnir að ekki virðist raunhæft að gera þá kröfu að Byggðastofnun varðveiti eigið fé að raungildi miðað við óbreytt hlutverk hennar við eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni. Þegar horft er til umfangs starfsemi Byggðastofnunar er rétt að íhuga hvort ekki megi fækka fulltrúum í stjórn Byggðastofnunar en nú eru stjórnarmenn sjö talsins og jafnmargir til vara. Verði lánastarfsemi Byggðastofnunar haldið áfram liggur beint við að huga að þróun fleiri fjármögnunartækja hjá stofnuninni og aðlaga fjármögnunarstarfsemina að aðstæðum í þjóðfélaginu. Reynslan sýnir að eftirspurn eftir lánum hjá stofnuninni dregst saman þegar mikill vöxtur er í landsframleiðslu. Langflestar lánveitingar Byggðastofnunar á árunum 1999 - 2009 eru til fyrirtækja í sjávarútvegi og auk þess á svæðum sem eru fámenn, hafa glímt við mikla fólksfækkun undanfarin ár og eru fjarri höfuðborgarsvæðinu. Um 4.000 störf eru á bak við útlán Byggðastofnunar á landsbyggðinni. Þar af eru 1.621 störf í sjávarútvegi. 1. desember 2010 voru 32% íbúa á vinnumarkaði í Vesturbyggð starfandi hjá fyrirtækjum sem eru í viðskiptum við Byggðastofnun. Samkvæmt úttekt Creditinfo eru 29% fyrirtækja á starfssvæði Byggðastofnunar með áhættu umfram eðlileg mörk og 14% fyrirtækja fá alls ekki á sig áhættumat þar sem þar sem þau eru ógjaldfær eða í alvarlegum vanskilum. Ný lög um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi geta ekki nema að mjög takmörkuðu leyti komið í stað lánastarfsemi Byggðastofnunar. Byggðastofnun er ætlað að taka þátt í átakinu „Beina brautin" sem á að hraða úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Erfitt er að leggja mat á það hversu miklar fjárhagslegar byrðar það leggur á Byggðastofnun enda er átakið nýlega hafið.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira