Útilokar ekki vaxtalækkun upp á 0,25 prósentur 31. janúar 2011 12:03
Greining Íslandsbanka útilokar ekki að vaxtalækkun Seðlabankans síðar í vikunni muni aðeins nema 0,25 prósentustigum. Samt sem áður spáir greiningin því að vaxtalækkunin verði upp á 0,5 prósentustig. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að það sem ber hæst þessa vikuna á íslenskum fjármálamarkaði er vaxtaákvörðunardagur Peningastefnunefndar Seðlabankans næstkomandi miðvikudag en auk vaxtaákvörðunarinnar mun bankinn birta uppfærða spá frá því í nóvember. „Reiknum við með því að nefndin ákveði að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur en útilokum ekki 25 punkta lækkun. Tvennt er helst að vegast á í þessari ákvörðun. Annars vegar er það hjöðnun verðbólgunnar sem ætti að hvetja til vaxtalækkunar og hins vegar lækkun gengis krónunnar undanfarið sem dregur eflaust úr vilja nefndarinnar til að lækka vexti bankans," segir í Morgunkorninu. Ennfremur kemur fram að eftir síðustu vaxtaákvörðun lýsti nefndin því yfir að eitthvert svigrúm væri enn til staðar til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds héldist gengi krónunnar stöðugt eða styrktist, og verðbólga hjaðnaði eins og spáð var. Þó gerði nefndin þann fyrirvara að óvissa sé um hversu svigrúmið er mikið til skemmri tíma vegna áforma um afnám hafta á fjármagnshreyfingar. Frá síðustu vaxtaákvörðun hefur verðbólgan haldið áfram að hjaðna og mælist nú 12 mánaða verðbólga 1,8% en hún hefur ekki verið minni frá því í mars árið 2004. Þó hefur gengi krónunnar lækkað nokkuð frá síðustu vaxtaákvörðun og verður nokkuð spennandi að sjá hvað nefndin segir við þeirri þróun. „Eins og áður sagði reiknum við með því að Peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur næstkomandi miðvikudag. Lækka vextir á viðskiptareiknum innlánsstofnana og hámarksvextir innistæðubréfa við þetta í 3,0% og 3,75% hvor um sig, vextir á lánum gegn veði til sjö daga í 4,0% og daglánavextir í 5,0%. Við útilokum hins vegar ekki minni lækkun þ.e. lækkun um 0,25 prósentur," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Sjá meira