Viðskipti innlent

Orkuskólinn REYST útskrifar annan nemendahóp sinn

Annar nemendahópurinn frá alþjóðlega orkuskólanum REYST, sem rekinn er af Orkuveitu Reykjavíkur, Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík er nú útskrifaður.

Í tilkynningu segir að það voru sex nemendur frá fimm löndum sem luku meistaraprófi á sviði sjálfbærrar orku, ýmist á vettvangi verkfræði, jarðfræði eða viðskipta. Athöfnin fór fram í höfuðstöðvum OR síðastliðinn föstudag.

Á meðal rannsókna sem nemendur unnu að er könnun á hagfræðilegum og umhverfislegum kostum þess að nýta jarðhitann hér á landi til að framleiða liþíum-rafhlöður og megindleg greining á fýsileika rafbílavæðingar.

Þeir sem útskrifast hófu nám síðsumars árið 2009 og fimm nemendur úr þessum árgangi REYST nema munu ljúka námi í vor, tveir Íslendingar, tveir frá Bandaríkjunum og einn frá Indlandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×