Kaupþing yfirtók risavaxið lán Ólafs ári fyrir hrun Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. febrúar 2011 18:45 Ólafur Ólafsson
Kaupþing yfirtók risavaxið lán Ólafs Ólafssonar hjá amerískum banka ári fyrir hrun, en án þess hefðu hlutabréf Kaupþings lækkað mikið í verði. Á svipuðum tíma var bankinn að gera gjaldeyrissamning við Ólaf, sem nú krefst 115 milljarða króna frá þrotabúi Kaupþings vegna gjaldeyrissamningsins. Egla dótturfélag Kjalars, sem var í eigu Ólafs Ólafssonar, fékk lán hjá bandaríska bankanum Citigroup gegn veði í hlutabréfum í Kaupþingi banka. Haustið 2007 fóru gjaldfellingarákvæði í lánasamningi hjá bandaríska bankanum að verða virk vegna lækkandi hlutabréfaverðs hjá Kaupþingi banka. Félag Ólafs gat í krafti stöðu hans í hluthafahópi bankans fengið Kaupþing til að taka yfir lánið hjá bandaríska bankanum í lok árs 2007, en á þessum tíma voru hagsmunir bankans og Ólafs orðnir mjög samtvinnaðir. Bankinn vildi ekki með nokkrum hætti offramboð á bréfum bankans á markað með tilheyrandi lækkun þeirra. Samkvæmt heimildum fréttastofu gerði Citigroup fyrst veðkall en síðan gjaldfelldi bankinn lánið. Þá tók Kaupþing lánið yfir í heild sinni og færði síðan hluta þess yfir á aðra banka og sparisjóði gegn góðum tryggingum. Hjörleifur Þór Jakobsson, forstjóri Kjalars, sagði í samtali við fréttastofu í dag að endurfjármögnun á láninu hjá Citigroup hafi verið að fullu lokið í mars 2008. Stuttu áður, í janúar 2008, veitti fékk Kjalar gjaldeyrisskiptasamning í hjá bankanum upp á tugi milljarða króna. Fram kom í Viðskiptablaðinu að þessi samningur hafi síðan verið endurnýjaður í miðju bankahruni. Á grundvelli hans gerir Kjalar kröfu um 115 milljarða króna, en það er hagnaður félagsins á átta daga tímabili í miðju hruni. Ef Kjalar vinnur málið skiptast eignir félagsins milli Glitnis og Eglu. Í yfirlýsingu sem Kjalar sendi frá sér segir að óháð niðurstöðu málsins sé ljóst að eigendur Kjalars muni aldrei fá krónu út úr félaginu. Hjörleifur Þór Jakobsson, forstjóri Kjalars, fullyrti í samtali við fréttastofu í dag að engin félög tengd Ólafi Ólafssyni ættu kröfur á Eglu og þar með ætti hann ekki lengur fjárhagslegra hagsmuna að gæta í félaginu.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira