Fimm sprotafyrirtæki á leið úr landi 15. apríl 2011 19:01
Að minnsta kosti fimm íslensk sprotafyrirtæki eru á leið með hluta starfsemi sinnar úr landi. Gjaldeyrirshöft gera það að verkum að erlendir fjárfestar forðast að fjárfesta hér á landi. Fyrirtæki eins og Meniga, Clara, Gogocig, Mobilitus og Datamarket hafa undanfarin ár skipað sér í farabrodd íslenskra sprotafyrirtækja sem miklar vonir hafa verið bundnar við frá hruni. Mikil þróunarvinna hefur átt sér stað hjá þessum fyrirtækjum undanfarin ár og nú er svo komið að fyrirtækin eru tilbúin með vöru sem þarf að selja. Og þá er litið til útlanda. Öll þessi fyrirtæki undirbúa eða eru með til skoðunar, samkvæmt heimildum fréttastofu að flytja hluta starfseminnar úr landi. „Við höfum verið að tala við töluvert af erlendum fjárfestum og mögulegum viðskiptavinum. Við sjáum það að upp á viðskiptavinina þurfum við að koma okkur upp skrifstofu erlendis þar sem viðskiptahluti fyrirtækisins verður rekinn, markaðsetning, sölustarf og annað slíkt," segir Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri Datamarket. Gjaldeyrishöftin eru líka að flækjast fyrir. „Það hjálpar kannski ekki til vera með gjaldeyrishöft og sú ímynd sem hefur verið dregin upp af Íslandi í alþjóðlegum fjölmiðlum laðar kannski ekki að erlenda fjárfestingu," segir Gísli. Í stað þess að reyna að sannfæra fjárfesta um að leggja peninga fyrirtæki hér á landi er einfaldara að flytja þau einfaldlega út.
Mest lesið Að umbreyta fómó í jómó um verslunarmannahelgina Atvinnulíf Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent „Verið að auglýsa öryggi sem er falsöryggi“ Neytendur Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Viðskipti innlent Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Viðskipti innlent Fékk ekki að lækka afborganir því hún komst ekki í gegnum greiðslumat Neytendur Festi hagnast umfram væntingar Viðskipti innlent Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Viðskipti innlent Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Búast við tveggja milljarða tapi Samruninn muni taka langan tíma Orri til liðs við Íslandsbanka Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Sjá meira